Vormót Umf. Elfingar
laugardagur 12. maí 2012
Vormót Umf. Elfingar verður haldið á Hvítasunnudag 27. maí næstkomandi. Keppt verður í hálfum Fita hring (50 og 30 metrar) en svo geta menn æft sig á löngu færunum líka, við verðum með völlinn á laugardeginum líka. Skráið ykkur með því að senda póst á gummigun@gmail.com og látið koma fram aldur og flokk. Tímasetningar og annað slíkt verður auglýst síðar. Hægt er að athuga með gistingu hjá sömu aðilum og bent er á fyrir Íslandsmótið en einnig verður hægt að tjalda við völlinn - þó eru alltaf líkur á að það verði kalt.
Íslandsmót utanhúss
miðvikudagur 18. apríl 2012
Fyrsta Íslandsmótið utanhúss verður haldið að Laugum í Reykjadal laugardaginn 30. júní þar sem keppt verður í sveigboga- og trissubogaflokki, karla, kvenna og unglingaflokki (17-20 ára). Keppt verður í heilum FITA hring þar sem skotið verður 36 örvum á 90, 70, 50 og 30 metra færi alls 144 örvum. Þá verður einnig keppt (samtímis) í hálfum FITA hring þ.e. 50 og 30 metra færi og verða verðlaun einnig veitt fyrir hálfan hring.
Sunnudaginn 1. júlí verður Opna Reykjadalsmótið haldið sem verður með FITA 900 sniði, þar sem skotið er af 60, 50 og 40 metra færi (30 örvum af hvorri vegalengd).
Skráning hefur verið opnuð en henni lýkur 23. júní næstkomandi.
Keppni hefst klukkan 9:00
Bent er á að hægt er að möguleiki er á gistingu á eftirfarandi stöðum:
Fosshótel (http://www.fosshotel.is/is/fosshotel/fosshotel-laugar/)
Narfastaðir (http://farmhotel.is/) Um 5 mín akstur frá Laugum
Stóru Laugar (www.storulaugar.is)
Tjaldstæði (http://www.lifsmotun.is/tjaldstaedi) Um 5 mín akstur frá Laugum
Bogfiminefnd ÍSÍ
ps. Mögulega verður einnig hægt að tjalda við völlinn þar sem er aðgangur að snyrtingu og sturtu - á eftir að fá það á hreint

Bogfimimót Akurs
miðvikudagur 18. apríl 2012
Bogfimimót Akurs á Akureyri 28 apríl nk. í íþróttahúsi Glerárskóla. Félagar okkar á Laugum og vonandi fleiri munu hjálpa okkur að halda mótið. Jón Eiríksson ætlar að koma og vera yfirdómari svo það er bara að senda okkur mail á bogaskytta@gmail.com Mótið hefst um hádegi á laugardag og verður klárað samdægurs. 2x30 örvar og útsláttar-keppni. Pizzuveisla og verðlaunaafhending á eftir.
Danage archery challenge
sunnudagur 15. apríl 2012
Sandefjord bueskyttere gengst fyrir Danage archery challenge 30 júní til 1. júlí nk. í tilefni af 40 ára afmæli Sandefjord bueskyttere sjá nánar.
Úrslit Íslandsmótsins 2012
sunnudagur 01. apríl 2012