IFR - Danish Open, Nordre Snede Denmark
miðvikudagur 26. maí 2010

Skemmst frá að segja var árangurinn ekki til að hrópa húrra fyrir. Ég var skráður á trissuboga (50 pund) og var því tilneyddur til að skjóta frá allt að 45m. Þetta tókst með hjálp félaga mins Tom Haneberg sem aðstoðaði mig við að stilla inn sigti á 5 metra millibill. (Gert á föstudagsæfingunni)
Eins og ég óttaðist þá féllu feitu innanhúss örvarnar minar mikið eftir 22 metra og var því ansi erfitt að hitta X10, 10 eða bara 8.
Eftir að hafa skotið að 40 dýr á laugadeginum og 20 á sunnudeginum varð niðurstaðan 336 stig sem er 5,6 að meðaltali og þar með búið að vinna upp þær örvar sem fóru framhjá.
Gerum betra nærst.
Bestu kveðjur
Hjörtur Gísla
Ps. Danir geta ekki sagt Hjörtur og því er ég kallaður Bambi i bogaheiminum (þó alfriðaður)
Her er tenging inn á klúbbinn sem hélt mótið:
http://www.noerresnedebueskyttelaug.dk./