Minningarmótið 2011 fyrri hluti
laugardagur 19. febrúar 2011
Nú stendur yfir Minningarmótið 2011 en þetta er mót sem haldið er til minningar um látna bogfimifélaga. Að þessu sinni er mótið með breyttu sniði þannig að fyrst er undankeppni þar sem skotið er 60 örvum á 18. metra færi. Undankeppnin er með forgjafarsniði þar sem hver keppandi hefur ákveðna forgjöf sem hann hefur áunnið sér. Vegna þessa er aðeins keppt í einum flokki eins og gert er á forgjafarmótum ÍFR. Á morgun 20. febrúar verður svo seinnihluti mótsins en þá verður keppt með útsláttarsniði eins og gert var á RIG í janúar sl.
Skorkort eru sýnd að þessu sinni með breyttu sniði og er þetta tilraun vegna útsláttarmótsins. Þess má geta að Þorsteinn Snorrason er efstur að stigum með 590 stig en hann keppir með sveigboga (recurve) og er með 6 í forgjöf.
Þess má geta að ekki er búið að raða keppendum í nákvæma röð í skorkortaskjalinu. Forgjöf hvers og eins er birt við hliðina á nafninu vinstra megin.