Bogveiðimót (3d hunting)

Ættlunin er að hafa 3-D bogfimikeppni í skógræktinni við Fannahlíð fyrsta laugardag í september þ.e. þann 3.
þessi kepni verður líka opin fyrir alla þá sem eru að skjóta af boga, ekki bara langboga.
Stefnan er að keppni hefjist klukkan 12:30. Mæting er við félagsheimilið Fannahlíð.

Við munum skjóta einn hring og reynt verður að hafa svipað mörg skotmörk og voru hjá okkur um daginn u.þ.b. 30.

Þeir sem ættla sér að keppa þurfa að senda e-mail á bogfimi@hringhorni.is fyrir föstudaginn 2. sept. og tilgreina hvernig boga þeir munu nota, Langboga recurve eða compound. Flokkaskipting verður einföld það eru traditional bogar og síðan nútíma bogar (recurve og compound).

Keppnisgjald er sem fyrr 2.500 kr og greiðist í síðasta lagi á staðnum fyrir keppni (ath. það verður að koma með pening enginn posi verður á staðnum) en hægt er að leggja inn á reikning og senda þá rafræna kvittun  á: bogfimi@hringhorni.is
 Reikningur: 0186-05-064640
 Kennitala: 710306-1920