Námskeið á Króknum
mánudagur 02. júní 2008
Eins og fram hefur komið hér áður þá hefur verið mikil aðsókn að námskeiðum sem haldin hafa verið í bogfimi á vegum ÍFR. Nú fyrr í vor var haft samband við okkur frá Skotfélaginu Ósmenn á Sauðárkróki en þeir hafa verið að skoða bogfimi af fullri alvöru. Samdist okkur um að halda stutt námskeið á Króknum og tók ég það að mér þar sem ég þurfti hvort sem er að vera á Sauðárkróki um þessi mánaðarmót.
Það er skemmst frá því að segja að námskeiðið var haldið sunnudaginn 1. júní í blíðskaparveðri og fór það fram utanhúss. Vorum við á afgirtu túni bak við sundlaugina með námskeiðið. Þetta var allt gert í góðri samvinnu skotfélagsins og lögrelgunnar á staðnum. Alls mættu 10 manns og var áhugi þeirra mikill. Vonandi er þetta byrjum á einhverju meira hjá þeim þarna fyrir norðan. Takk fyrir samstarfið Sauðkrækingar.