Järvakandi Ilves bikarinn

Summary only available when permalinks are enabled.
Bogfimi félagið Ilves frá Eistlandi er að skipuleggja E-Mail mót sem verður í þremur umferðum. Uppsetningin er einföld: skotið á 18 metrum (30 + 30 örvum) á tripple skífu Ø40 cm og niðurstaðan send með tölvupósti til ilvescup@hotmail.com fyrir tilskilin frest.
Það er ekkert þátttökugjald og engrar skriflegrar sönnunar á skori er krafist. En þátttakendur verða að fylgja FITA reglum og meginreglum sanngjarna keppni.
 
Þetta innanhúss E-Mail mót kallast "Järvakandi Ilves bikarinn" og er frábært tækifæri til að bera saman stigaskor þitt við (archers) iðkendur frá öllum heimshornum. Fjöldi þátttökulandanna eykst hvert ár - síðasta ári voru skyttur frá 16 löndum. Þessi keppni er ætluð fyrir alla recurve og compound skyttur sem skjóta af 18 metra fjarlægð. Allir eru velkomnir bæði byrjendur og hæsta klassa skyttur. Mundu að það er ekkert skráningargjald og allir vilja finna einhvern til að keppa við!
 
Þátttakendur hafa 7 daga til að senda skor eftir fyrstu umferð!
 
Algengar spurningar:

Hvar get ég tekið þátt í þessari keppni, þarf ég að koma til Eistlands?
Nei, þú þarft ekki að koma til Eistlands. Hægt er að skjóta 18 metra færi tveim umferðum (30+30 skot) á venjulegri æfingu eða í opinberri keppni. Sama hvar þú býrð, öllum er heimil þátttaka.
 
Hvenær þarf ég að skjóta þessa keppni?
Það eru þrjár umferðir sem standa tvær vikur hver -á þeim tíma þarft þú að skjóta og senda niðurstöðurnar í tölvupósti.
1. umferð: 16 - 29 nóvember 2009
2. umferð: 7- 20 desember 2009
3. umferð: 18 - 31 janúar 2010

Hvernig á ég senda stigin mín?
Þú verður að senda tölvupóst til ilvescup@hotmail.com fyrir lok hverrar umferðar, með eftirfarandi upplýsingum:
Nafn
• Deild (recurve karla / recurve kvenna / compound karla / compound kvenna)
• Skor (30 + 30 örvar aðskilið )
• Nafn bogfimi félags
• Land
• fæðingarár
 
Hvernig get ég fengið nánari upplýsingar og hvar get ég séð niðurstöður?
Nánari upplýsingar um mótið er að finna á vefsíðunni www.archery.ee. Niðurstöðurnar verða einnig að finna á síðunni eftir lok 1. umferðar. Ef þú hefur enn nokkrar spurningar, ekki hika við að senda tölvupóst á ilvescup@hotmail.com.
 
Ég tilheyri ekki Landsliði. Get ég tekið samt tekið þátt í alþjóðlegu móti?
Auðvitað! Enda þótt mörg landslið taki þátt, er einnig fullt af venjulegu bogfimifólki og einnig byrjendur. Svo ekki hika við að senda skorið þitt. Fjöldi keppenda frá hverju landi er ekki takmarkaður.
 
Get ég tekið þátt enn þó ég hafi misst eina af þessum þremur umferðum?
Já, þú getur það. Ég myndi jafnvel segja: "þú ættir". Þú ættir að nota þetta tækifæri, því eins og þú getur séð á reglum um www.archery.ee, endanlega niðurstaða verður byggt á summu tveggja bestu umferðar hvers þátttakanda.
 
Ekki hika við að senda áfram þessar upplýsingar til allra bogfimiiðkenda og bogfimi félaga! Gangi þér vel og við bíðum eftir tölvupósti frá þér!
 
Fyrir hönd skipuleggjenda,
Siret Luik

lausleg þýðing JE
E-Mail_Indoor_Competition