Vetrarstarfið hefst uppúr næstu mánaðarmótum

Vetrarstarfið fer að hefjast hjá bogfimifólki ÍFR uppúr næstu mánaðarmótum. Mikið hefur verið spurt um námskeið í sumar en sökum framkvæmda við hús ÍFR hefur það ekki verið hægt. Fljótlega uppúr mánaðarmótum verður komin í gagnið skráningarsíða hér á vefnum þar sem hægt verður að skrá sig á námskeið. Tilkynnt verður hér á vefnum þegar skráningarsíðan er tilbúin svo það er bara að fylgjast með.