8. Internetmót ÍFR og MTV

Áttunda Internetmót ÍFR og MTV Dannenberg verður haldið laugardaginn 3. mars næstkomandi. Þeir sem ætla að taka þátt eru beðnir um að skrá sig niðrí íþróttahúsi ÍFR. Athugið að það geta aðeins verið þátttakendur frá þessum tveim félögum ÍFR og MTV. Verið er að para saman keppendur þ.e. frá ÍFR á móti MTV. Vakin er athygli á eftirfarandi reglu: Allir keppendur skjóta tveim lotum 2x30 örvum á þrefalda (tripple) skífu af 18 metra færi. Ungar skyttur (fæddar 1996-97) og lanbogar (eða bearbow) nota venjulega 40 cm, Þeir sem fæddir eru (1998-2001) 60 cm og yngri 80 cm skífur. Athugið: Í compound flokki gildir innri hringurinn sem 10.