Strandhögg í Noregi
sunnudagur 15. október 2000
Summary only available when permalinks are enabled.
21. júlí 2000 15. manna hópur gerði "strandhögg" í Fredrikstad í Noregi eins og stóð í einu bæjarblaðinu síðast liðið sumar. Tengsl höfðu myndast milli ÍFR og ágætra manna frá Fredrikstad og buðu þeir hópnum að koma í heimsókn. Aðaltilgangur ferðarinnar var að fá tækifæri til að skjóta utanhúss en aðstaða klúbbsins (Fredrikstad bueskyttere) þar er alveg þokkaleg. Efnt var til keppni þann 13. júlí og var skotin svokallaður Scandia runde en þá er keppt á 60 metra 50 metra og 40 metra færi og skotið 30 örvum á hverju færi fyrir sig. Það verður að segjast að árangur okkar manna var alveg eins og við var að búast en þetta var í fyrsta skipti sem margir þeirra voru að keppa á þessu færi. Það voru Fredrikstads bueskyttere og Fredriksstads Handicap Idrettslag sem stóðu að þessari ferð okkar sem tókst í alla staði vel og verður þessu ágæta fólki seint fullþakkað.





