Fyrri dagur Íslandsmóts ÍF
laugardagur 24. mars 2007
Fyrri dag Íslandsmóts ÍF í bogfimi er lokið. Þó nokkur forföll urðu á skráðum keppendum en 16 keppendur hófu mótið í morgun. Þegar búið er að skjóta 60 örvum er staðan þessi: Í compound flokki er Kristmann Einarsson efstur með 570 stig, í Opnum flokki karla í recurve er Þröstur Steinþórsson með 482 stig. Ester Finnsdóttir er efst í kvennaflokki með 465 stig. Kjartan Halldórsson er efstur í byrjendaflokki með 319 stig og Davíð Ólafsson er efstur í unglingaflokki með 181 stig. Endanleg úrslit verða svo birt hér á morgun.