Heimsókn góðra gesta og fl.
fimmtudagur 12. febrúar 2009
Summary only available when permalinks are enabled.
Síðastliðinn sunnudag komu félagar í Víkingafélaginu Hringhorna á Akranesi í heimsókn til okkar hjá bogfimideild ÍFR. Höfðu þeir með sér nokkra boga til að sýna okkur. Þeir föluðust einnig eftir því að fá að taka þátt í Íslandsmótinu í bogfimi. Það var auðsótt mál og eigum við því væntanlega von á því að keppt verði í langbogaflokki í fyrsta skipti á mótinu.
Þessi heimsókn þeirra Hringhorna manna varð til þess að umsjónarmaður þessa vefs og Ingi Bjarnar formaður bogfiminefndar ÍFR fórum í heimsókn á bogfimiæfingu hjá víkingafélaginu Rimmugýgi í Hafnarfirði. Hittum þar fyrir vaska menn og tókum með þeim nokkur skot. Nefndum við þetta einnig við þá hvort áhugi væri að þeir tækju þátt líka í mótinu og er það í athugun hjá þeim.