Innanfélagsmót ÍFR 2011
sunnudagur 10. apríl 2011
Innanfélagsmót ÍFR í bogfimi verður haldið um næstu helgi á venjulegum æfingatíma. Fyrst verður hefðbundið 60 örva mót en daginn eftir á sunnudeginum verður útsláttarkeppni. Útsláttarkeppnin verður með breyttu sniði veitt verða 2 stig fyrir unna umferð (3 örvar) 1 stig fyrir jafntefli og 0 fyrir tap. Sá vinnur lotuna sem fyrr nær 6 stigum.
Keppendur í Sveigbogaflokki nota 40 cm skotskífu. Í Trissuboga flokki er skotið á "Tripple" skífu. Í langboga og unglingaflokki er skotið á 60 cm skífu ef um slíka flokka verður að ræða.
Skráning á mótið er hér á vefnum á síðu sem heitir mótaskráning. Skráningu líkur föstudaginn 15. apríl fyrir kl. 23:00.