2004

Reykjavíkurmótið 2004

Reykjavíkurmótið í bogfimi fór fram 20. og 21. nóvember 2004 í Íþróttahúsi ÍFR og má sjá úrslit mótsins hér

Fyrsta FITA mótið

Fyrsta FITA mótið á Íslandi fór fram dagana 21. og 22. ágúst 2004. Keppt var á hefðbundum vegalengdum 30, 50, 70 og 90 metrum, í karlaflokki (undir 50 ára). Ekki tóku nema 3 keppendur þátt í mótinu 2 með recurve boga og einn með Compound boga. Keppt var á Valbjarnarvelli í Laugardal í frábæru veðri báða dagana.

Günther Pinske látinn

Þær dapurlegu fréttir bárust frá Þýskalandi að góður félagi okkar í Dannenberg klúbbnum Günther Pinske hafi látist í umferðarslysi þann 2. ágúst s.l. Günther tók þátt í afmælismóti ÍFR hér á Valbjarnarvelli þann 5. júní sl. og var hann eini félaginn frá Dannenberg sem það gerði. Okkur hér heima er bæði ljúft og skylt að minnast þessa góða drengs sem margar bogaskyttur hér heima hafa átt góð samskipti við.

Afmælismót ÍFR

Þann 5. júní 2004 var haldið utanhússmót á Valbjarnarvelli í tilefni af 30 ára afmæli ÍFR Keppt var á tveim vegalengdum 30 metrum og 50 metrum. Alls tóku 13 einstaklingar þátt í mótinu þar af einn frá Dannenberg í Þýskalandi. Á sama tíma héldu félagar í Danenberg klúbbnum mót þar sem þeir kepptu á móti félögum ÍFR úrslitin urðu þessi

Íslandsmót ÍF í bogfimi 2004

Íslandsmótið í Bogfimi 2004 var haldið dagana 27. og 28. mars í Íþróttahúsi ÍFR. Sjá nánari umfjöllun hér.

Malmö Archery Open

10. og 11. janúar 2004 kepptu tveir félagar ÍFR þeir Guðmundur Þormóðsson og Kristmann Einarsson á Malmö Archery Open. Guðmundur keppti í Recurve flokki en Kristmann í Compound flokki.