2010

Bogfimi á RIG 15 og 16. janúar nk.

Eins og fram hefur komið hér fyrr verður keppt í bogfimi á Reykjavik International Games. Mótið stendur yfir í tvo daga þann 15. og 16. janúar. Skotið verður 60 örvum fyrri daginn og verður keppt sér í sveigboga (recurve) flokki karla og kvenna. Hefst sú keppni kl. 09:00 þann 15. Keppni í trissubogaflokki (Compound) karla og kvenna hefst svo kl. 13:00 sama dag. Átta efstu í hvorum flokki munu síðan keppa í útsláttarkeppni daginn eftir þar til úrslit liggja fyrir og hefst sú keppni kl. 09:00. Skráningu lauk þann 1. desember sl. Á síðunni "Mót framundan" má finna nánari upplýsingar svo og nöfn keppenda.

Úrslit í þriðja forgjafarmótinu

Þriðja forgjafarmóti ÍFR er lokið. Að þessu sinni voru 7 keppendur í mótinu. Efstur að þessu sinni varð Þröstur Steinþórsson með 293 stig en hann hefur 4 í forgjöf. Í öðru og þriðja sæti urðu Kristmann Einarsson og Björn Halldórsson með 287 stig en Kristmann er með 1 í forgjöf en Björn með 11 í forgjöf. Nánar upplýsingar eru á "Úrslit móta".

Úrslit í öðru forgjafarmótinu

Öðru forgjafarmóti ÍFR er lokið. Að þessu sinni voru 7 keppendur í mótinu. Tveir nýjir bættust við frá því síðast þau Anna Sigríður Guðmundsdóttir sem var með 27 í forgjöf og svo Lárus Jón Guðmundsson sem fékk 14 í forgjöf. Ingi Bjarnar lækkaði um eitt stig í forgjöf frá því á síðasta móti en Daði Ragnarsson hækkaði um 1 stig frá því síðast.

Annað forgjafarmótið

Laugardaginn 27. nóvember verður annað forgjafarmót vetrarins hjá ÍFR. Mótið hefst uppúr kl. 15:30

Opna Reykjavíkurmótið 2010 Úrslit

Opna Reykjavíkurmótinu í bogfimi 2010 er lokið. Aðeins tóku 12 keppendur þátt í mótinu að þessu sinni og er það óvenju lítil þátttaka. Hins vegar voru margir keppendur að gera góða hluti á þessu móti.

Opna Reykjavíkurmótið 2010

Opna Reykjavíkurmótið í bogfimi verður haldið dagana 20. og 21. nóvember n.k. í íþróttahúsi ÍFR. Skotið verður 60 örvum hvorn dag á hefðbundu innanhús færi þ.e.a.s. 18 metrum.

Úrslit í forgjafarmóti

Úrslitin í forgjafarmótinu sem fram fór þann 30. október liggur nú fyrir. Alls höfðu 11 keppendur unnið sér þátttökurétt að þessu sinni en einn forfallaðist.

Fyrsta forgjafarmót vetrarins

Laugardaginn 30. október kl. 17:00 hefst fyrsta forgjafarmót vetrarins hjá ÍFR. Sjá nánar um þátttökurétt og skilyrði.

Tilkynning til ÍFR félaga

Námskeið aðeins fyrir ÍFR félaga nánar á vef félagsins. Þetta námskeið er aðeins fyrir vanar skyttur.

Bogfimideildarfundur

Stjórn bogfimideildar ÍFR boðar til fundar laugardaginn 18. september kl. 14:30 í fundarsal ÍFR

Fundarefni:
Starfið framundan skv. áður útgefinni dagskrá
Félagar fjölmennið!

Öflugt starf framundan

Dagskrá bogfimideildar ÍFR er nú orðin aðgengileg hér á vefnum. Hún gildir frá september 2010 til júní 2011. Stefnt er að fjölbreyttu mótahaldi ásamt ýmsu öðru t.d. að halda vinnufundi þar sem búnaður er lagfærður og þh. Helsta nýjungin eru forgjafarmót sem ætlunin er að halda einu sinni í mánuði og verður það fyrsta þann 30. október næstkomandi.

Vetrardagskráin kynnt

Bogfimiiðkendur ÍFR - fundur nk. laugardag niðrí íþróttahúsi kl. 15:00 fyrir æfinguna. Þar verður vetrardagskráin kynnt ásamt fleiru.

Bogfimi á RIG

Keppt verður í bogfimi á Reykjavik International Games (RIG). Mótið mun fara fram 15. og 16. janúar 2011 í Íþróttahúsi ÍFR. Nánar verður fjallað um þetta hér þegar nær dregur. Fljótlega verða upplýsingar einnig aðgengilegar á síðunni "Mót framundan".

Íslenskt gull á NUM 2010

Norðurlandamót unglinga í bogfimi fór fram í Sandefjord í Noregi 3. - 4. júlí sl. Þar keppti einn íslendingur Björgvin Hjartarson ÍFR og keppti hann í langbogaflokki. Náði hann fyrsta sæti þ.e. gulli í þeim flokki. Einnig keppti hann í svokölluðum mix hóp og náði þar silfri.
Gefum föður hans Hirti Gíslasyni orðið.
"Þá er lokið NUM 2010 í Sandefjord Noregi.
Okkar manni gekk vel, náði gulli í Langboga og silfri í mix hóp.
Það komu margir að máli við mig og  lýstu yfir áhuga á að fara í æfinga / keppnisferð til Íslands.
Einnig er áhugi fyrir að halda NUM á Íslandi í náinni framtíð. Mótshaldarar í Sandefjord eru tilbúinir að aðstoða með búnað og skipulag. (sem var til fyrir myndar)".

Nokkrar myndir frá mótinu

Úrslit miðnæturmótsins 2010

Þá er lokið vel heppnuðu miðnæturmóti sem fram fór á Hamranesvelli í Hafnarfirði. Alls tóku 34 keppendur þátt í mótinu. Úrslitin er að finna á síðunni Úrslit úr ýmsum mótum.
Við sem að þessu móti stóðu viljum þakka öllum þeim sem veittu okkur aðstoð á einn eða annan hátt eins þeim fjölmörgu sem styrktu okkur. Þá viljum við þakka að sjálfssögðu keppendunum fyrir þeirra þátt í mótinu.

Midnight Archery Open 2010

Miðnæturmótið í bogfimi 2010 hefst þann 26. júní kl. 22:00. Mótið verður haldið á Hamranesvelli v/Hafnarfjörð skotin verður hálfur FITA round á vegalengdunum 50 og 30 metrum. Skráningarfrestur var til 10. júní sl.
Alls eru 37 keppendur skráðir til leiks frá Danmörku, Englandi, Hollandi, Íslandi, og Þýskalandi.

Góður árangur Kristmanns

Dagana 12. og 13. júní tók Kristmann Einarsson ÍFR þátt í FITA móti hjá Sherwood Ardchers frásögn hans fylgir hér á eftir:

12. FITA mót hjá Sherwood Archers. Gekk vel til að byrja með á 90m en svo fór aðeins að halla undan fæti. Fékk hæsta skor dagsins á 50m. Endaði með 1.328 stig sem er ekki alveg nógu gott. 4.sæti.
13. 4* 70m. Gekk mjög vel í fyrstu tveim lotum með rétt undir 340 stig í hvorri. Þá var ég með 12 stiga forskot á næsta. Eftir þriðju lotu missti ég niður 10 stig. Ég náði 340 stigum í síðustu og endaði með 6 stiga forskot (1347) og vann GULLLLLLL.

Jónsmessumót

Þann 24. júní næstkomandi efna Hringhorni á Akranesi og ÍFR til bogveiðimóts (3d hunting) Mæting kl. 17:00 við félagsheimilið Fannahlíð undir Akrafjalli (Fellsöxl). Hringurinn sem farinn er er u.þ.b. 1,5 km. Farnir verða tveir hringir. Grillað verður við félagsheimilið Fannahlíð.
Keppnisgjald er 2.500 kr.

Ferð í tengslum við miðnæturmótið

Á miðnæturmótið kemur 13. manna hópur frá MTV-Dannenberg. Skipulögð hefur verið fyrir þá ferð sem standa mun í þrjá daga. Farið verður frá Hotel Cabin kl. 08:00 þann 28. júní. Tekin verður "Gullhringurinn og endað á Hótel Heklu þar sem gist verður fyrstu nóttina. Daginn eftir verður svo farið í Þjórsárdalinn og Landmannalaugar og endað á Hvoli þar sem gist verður. Síðasta daginn þann 30. júní verður svo farið austur í Jökulsárlón og þaðan til Reykjavíkur.

Við eigum enn laus sæti í þessa ferð.
Verð kr. 36.900 á mann í 2ja manna herbergi
Verð kr. 42.900 ef um eins manns herbergi er að ræða.

Hafið samband við Inga Bjarnar í síma 690-9200
Allir bogfimiiðkendur velkomnir.

Vann mína aldursgrein

Nú er það í fyrsta skiptið (eftir þvísem ég best veit) að meðlimur ÍFR bofimi vann 3d veiði keppni erlendis. Það gerðist í dag á Lejrejagten, keppnininni var deilt up í 3 aldursgreinar, mini 12 ára og yngri, junior 13 til18 ára , og svo var hópur fyrir gamlafólkið. Í alt voru ca 125 kependur, og þar á meðal hellingur af dönum, svíum og svo 2 Íslendingar, ég - Björgvin Hjartarson junior og pabbi - Hjörtur Gíslason senior. Keppnin var bara fyrir langboga og því mjög gaman. Það voru  448 möguleg stig (gömlu reglurnar) og út úr því fék ég 295 og vann þar með Junior flokkinn þótt að það væru dregin -5% af mér fyrir að hafa gerviefni í boganum mínum. Ekki er vitað hversu hátt Hjörtur komst enda er hann vanur að skjóta með Trissuboga en ekki langboga. Þetta var  eitt af hinum skemtilegustu mótum sem ég hef verið á, og var það í annað skipti sem  ég hef skotið þar.
Það var skotið á leirdúfur úr skífuefni og "claout skydning" í alt að 170m færi. Einnig var skotið eftir gervi fuglum með fluflu- örvum og deyfðum (blunt) oddum í góðri hæð.
Í alt var þetta frábær veiði sem varaði frá föstudegi til sunudags, þar sem það líka var skemmtun á kvöldin og setið við varðeld fram á nótt.
Björgvin Hjartarson

Myndir frá mótinu

IFR - Danish Open, Nordre Snede Denmark

Þá er ég búinn að stilla upp fyrir Íslands hönd i fyrsta skipti á bogaveiðimót.
Skemmst frá að segja var árangurinn ekki til að hrópa húrra fyrir. Ég var skráður á trissuboga (50 pund) og var því tilneyddur til að skjóta frá allt að 45m.  Þetta tókst með hjálp félaga mins Tom Haneberg sem aðstoðaði mig við að stilla inn sigti á 5 metra millibill. (Gert á föstudagsæfingunni)
Eins og ég óttaðist þá féllu feitu innanhúss örvarnar minar mikið eftir 22 metra og var því ansi erfitt að hitta X10, 10 eða bara 8.
Eftir að hafa skotið að 40 dýr á laugadeginum og 20 á sunnudeginum varð niðurstaðan 336 stig sem er 5,6 að meðaltali og þar með búið að vinna upp þær örvar sem fóru framhjá.
Gerum betra nærst.
 
Bestu kveðjur
Hjörtur Gísla

Ps. Danir geta ekki sagt Hjörtur og því er ég kallaður Bambi i bogaheiminum (þó alfriðaður)
 
Her er tenging inn á klúbbinn sem hélt mótið:
http://www.noerresnedebueskyttelaug.dk./

Miðnæturmót í bogfimi

Miðnæturmótið í bogfimi 2010 hefst þann 26. júní kl. 22:00. Mótið verður haldið á Hamranesvelli v/Hafnarfjörð skotin verður hálfur FITA round á vegalengdunum 50 og 30 metrum. Keppnisgjald er kr. 2.600 og greiðist við skráningu.

Afnot af Hamranesvelli

Samið hefur verið um að bogfimiiðkendur geti fengið afnot af Hamranesvelli í sumar á eftirfarandi tímum:
Fram til kl. 16:00 alla virka daga og svo aftur eftir kl. 22:00. Á laugardögum er völlurinn laus eftir kl. 16:00 og fyrir kl.10. Á sunnudögum er völlurinn hins vegar laus allan daginn.
Í undir búningi er að setja upp nauðsynleg tæki og tól og munum við láta vita um leið og það er tilbúið.

Fréttir að norðan

Innan Skotfélagsins Ósmann á Sauðárkróki er stunduð bogfimi eins og fram kemur á síðunni um bogfimi á Íslandi. Þeir hafa verið með kynningar á greininni fyrir norðan og í gær var fyrsti hópurinn þetta sumarið um 20 krakkar hjá þeim. Þeir hafa verið að endurnýja og kaupa búnað meðal annars Ethafoam skotmörk og fl.
Þá hyggast þeir kynna bogfimi fyrir félögum í skotfélaginu Markviss á Blönduósi.

Undirbúningur í fullum gangi

Undirbúningur undir miðnæturmótið sem halda á á Hamranesvelli í Hafnarfirði gengur vel. Gert er ráð fyrir u.þ.b. 45-50 þátttakendum þar af 15 frá Þýskalandi nánar tiltekið frá MTV-Dannenberg.

Íslandsmótið seinni dagur

Íslandsmótinu er lokið og voru alls 27 keppendur að þessu sinni. Keppnin var oft á tíðum hörku spennandi og lítið af stigum sem skildi stundum á mili. Aðstaða til keppni var mun betri í dag heldur en var í gær. Vonandi klúðrast ekki aftur svona hlutir með keppnisstaðinn.
Í Recurve flokki karla var sett nýtt met 1.087 stig og það gerði Guðmundur Smári Gunnarsson. Þá setti Óskar Birgisson met í langbogaflokki karla eða 520 stig. Þá var einnig sett met í langbogaflokki kvenna en það gerði Indíana Elín Ingólfsdóttir og fékk hún alls 454 stig. Úrslitin eru hér á vefnum og hægt að fletta upp skorkorti hvers og eins keppanda að venju.
Myndir frá mótinu er að finna á Fésbókinni.

Íslandsmótið fyrri dagur

Íslandsmótið er í fullum gangi. Óhætt er að segja að keppnin er þræl spennandi. Við áttum von á alls 35 keppendum en þeir urðu alls 27 sem mættu til leiks.
Það verður að segjast eins og er að aðstaða til keppni var heldur í lakara lagi í dag en okkur hefur verið lofað að það verði snöggtum betra á morgun. Keppnin á morgun hefst kl. 09:00 stundvíslega og þurfa keppendur að vera mættir ekki seinna en kl. 08:30.

Íslandsmót - skráningu lokið

Skráningu fyrir Íslandsmótið 2010 hefur verið lokað. Ekki verður tekið við fleiri skráningum. Alls hafa 14 keppendur skráð sig í Recurve flokki 5 hafa skráð sig í Compound flokki. Í langbogaflokki eru alls skráðir 16 keppendur.

Bogfimi á Facebook

Fyrir nokkru bjó ég til síðu á Facebook um bogfimi og er hún hugsuð sem samskiptaleið fyrir alla bogfimi áhugamenn hér á landi. Ný krækja (linkur) er komin hér á vefinn beint á þessa síðu sem heitir "Bogfimi á Facebook". Síðan hefur nú þegar fengið nokkra aðdáendur þrátt fyrir að hafa verið stuttan tíma í loftinu. Endilega sendið inn myndir og þess háttar.

Internetmótinu lokið

Sjötta Internetmóti ÍFR og MTV er lokið. Staðan varð 36 : 28 fyrir ÍFR. Munurinn er mun minni heldur en í fyrra. Við getum verið ánægð með árangurinn. Að loknu móti söfnuðumst við nokkur saman í félagsheimili ÍFR og vorum í beinu sambandi við MTV félaga í gegnum Skype. Þeir óskuðu okkur til hamingju með sigurinn og við þeim sömuleiðis fyrir góða keppni. Sett hefur verið upp síða sem sýnir hvernig úrslit urðu og hvernig mótið þróaðist.

Íslandsmótið 2010

Skráning fyrir Íslandsmótið sem haldið verður 20. og 21. mars þarf að hafa borist fyrir 10. mars næstkomandi. Vinsamlegast hafið samband við undirritaðan ef ykkur vantar skráningarblöð.
Jón Eiríksson

Internetmótið


Tripple skífa
Eins og fram hefur komið þá verður 6. Internetmót ÍFR og MTV laugardaginn 27. febrúar. Skráning hefur verið sett upp og þurfa menn að skrá sig sem fyrst. Vakin er athygli á eftirfarandi reglu: Allir keppendur skjóta tveim umferðum 2x30 örvum á þrefalda (tripple) skífu af 18 metra færi. Ungar skyttur (fæddar 1994-95) og lanbogar (eða bearbow) nota venjulega 40 cm, Þeir sem fæddir eru (1996-99) 60 cm og yngri 80 cm skífur. Athugið: Í compound flokki gildir innri hringurinn sem 10.

Tambar Open í Færeyjum

Kristmann Einarsson
Bogaskjótifelagið Tambar í Þórhöfn í Færeyjum stóð fyrir móti Tambar Open þann 13. febrúar sl. Kristmann Einarsson tók þátt í mótinu og keppti í Compound flokki. Það er stutt frá því að segja að hann vann sinn flokk mótið fór fram með útsláttar sniði. Alls náði hann 587 stigum í fyrsta hluta. Í undanúrslitum náði hann 114 stigum en þá er skotið 12 örvum. Í úrslitunum náði hann svo 115. stigum. Þetta mun vera nýtt Íslandsmet.
Þess má geta að félagið í Færeyjum dregur nafn sitt úr kvæðinu Ormurinn langi

"Einar skalt tú nevna meg
væl kann boga spenna
Tambar eitur mín menski bogi,
ørvar drívur at renna"

Skorkort frá mótinu
Tambar open

Sjötta Internetmótið

Skráning fyrir 6. Internetmót ÍFR og MTV Dannenberg hefur verið sett upp í Íþróttahúsi ÍFR. Skráning þarf að hafa borist fyrir 24. febrúar næstkomandi. Mótið fer svo fram þann 27. febrúar og þess má geta að 3 keppendur taka þátt í Færeyjum og einn í Stykkishólmi.

Úrslit á Minningarmóti ljós

Úrslit Minningarmótsins sem fram fór 13. febrúar eru kominn á vefinn. Aðeins tóku 12 þátt að þessu sinni. Myndir frá mótinu eru á síðunni Minningarmót 2010

Minningarmótið

Minningarmót um látna félaga verður haldið nk. laugardag í íþróttahúsi ÍFR og hefst kl. 15:30. Skráning er niðrí íþróttahúsi hvet ég alla sem ætla að taka þátt að skrá sig í síðasta lagi föstudaginn 12. febrúar.

Innanfélagsmótið

Eins og sagði hér fyrr þá var innanfélagsmót ÍFR haldið 16. janúar og tóku alls 15 félagar þátt í mótinu. Keppt var í 7 flokkum: Opnum flokki karla (recurve); Opnum flokki karla (compound); Opnum flokki kvenna (recurve); Flokki fatlaðra (compound); Flokki fatlaðra (recurve); Unglingaflokki; og Byrjendaflokki. Úrslit urðu nokkuð óvænt í sumum flokkum sem gerði mótið mjög spennandi. Nokkrar myndir frá mótinu eru svo komnar hér á vefinn einnig.

Fullbókað

Nokkrar fyrirspurnir hafa verið að berast um byrjendanámskeið í bogfimi á þessu ári. Það er skemst frá því að segja að þegar er kominn langur biðlisti og engar horfur á að nein pláss losni fyrr í mars amk.

Innanfélagsmót ÍFR 2010

Innanfélagsmót ÍFR í bogfimi fer fram þann 16. janúar næstkomandi. Skotið verður innanhúss af 18. metra færi samtals 60 örvum. Mótið hefst kl. 15:30. Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig á þar til gert eyðublað niðrí íþróttahúsi sem allra fyrst.

Gleðilegt nýtt ár

Þakka öllum bogfimimönnum góð samskipti á liðnu ári og vonandi verður nýja árið jafn blómlegt og það síðasta.