RIG 2012 Skráningu lokið
miðvikudagur 14. desember 2011
Skráningu fyrir RIG 2012 er nú lokið en skráning þurfti að vera komin fyrir 15. desember. Alls skráðu sig til 24 þátttakendur til keppni þar af 6 frá Færeyjum. Í trissubogaflokki (compound) verða 10 keppendur en í sveigbogaflokki verða þeir alls 14. Keppendur koma frá eftirtöldum félögum Umf. Eflingu, ÍFR, Tambar, Vágaskot og Skotfélaginu Ósmann.
RIG 2012
fimmtudagur 24. nóvember 2011
Keppt verður í bogfimi á Reykjavik International Games (RIG). Mótið mun fara fram 21. og 22. janúar 2012 á annari hæð Laugardalshallarinnar. Þetta er á sama stað og í fyrra. Nánar verður fjallað um þetta hér þegar nær dregur.
Skráningarsíða fyrir keppnina var útbúin en skráning þurfti að vera komin fyrir 15. desember 2011.
Af gefnu tilefni skal tekið fram að notaðar verða 40 cm skífur í sveigbogaflokki (recurve) en "tripple" skífur í trissubogaflokki (compound).
Hægt er að fletta upp skráðum keppendum hér en það sem sett er á skráningar síðuna kemur á lista yfir keppendur í lok dags.

Úrslit á Reykavíkurmóti 2011
sunnudagur 20. nóvember 2011
Úrslit Reykjavíkurmótsins 2011 liggja fyrir. Aðeins var keppt í tveim flokkum að þessu sinni þ.e. Trissubogaflokki og Sveigbogaflokki.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Trissubogaflokkur
Úrslit urðu eftirfarandi:
Trissubogaflokkur
- Kristmann Einarsson 1.144 stig
- Þröstur Steinþórsson 1.104 stig
- Guðgeir Guðmundsson 1.097 stig
- Þorsteinn Snorrason 1.000 stig
- Guðmundur Þormóðsson 937 stig
- Valur Pálmi Valsson 882 stig
Fullbókað
þriðjudagur 15. nóvember 2011
Fullbókað er nú á öll byrjendanámskeið hjá ÍFR fram að áramótum.
Reykjavíkurmót í bogfimi
þriðjudagur 15. nóvember 2011
Reykjavíkurmótið í bogfimi verður haldið í Íþróttahúsi ÍFR dagana 19. og 20. nóvember næstkomandi. Keppnin hefst kl. 16:00 á laugardag. Mæting er kl. 15:30. Keppt er 2x30 örvar hvorn dag á 18 metra færi. Trissubogaskyttur nota "tripple" skífur en sveigbogar nota FITA 40 cm skífu.
Skráning er í Íþróttahúsi ÍFR og lýkur á morgun 16. nóvember.
Skráning er í Íþróttahúsi ÍFR og lýkur á morgun 16. nóvember.
Námskeið að fara í gang
sunnudagur 30. október 2011
Núna næstu daga verður haft samband við alla þá sem pantað höfðu byrjendanámskeið í bogfimi hjá ÍFR. Jafnframt hefur verið opnað fyrir skráningu aftur. Námskeiðin verða á miðvikudögum og föstudögum í vetur. Þeir sem höfðu pantað námskeiðspláss ganga að sjálfssögðu fyrir.
Vetrardagskrá bogfiminefndar ÍFR er einnig komið á vefinn.
Vetrardagskrá bogfiminefndar ÍFR er einnig komið á vefinn.
Bogveiðimótið
sunnudagur 04. september 2011
Bogveiðimót Hringhorna fór fram þann 3. september og ég held ég gefi Þorsteini Snorrasyni einum keppendana orðið.
"3D mót Hrinhorna fór fram í eindæma veðurblíðu 3 sept í Fannarhlíð (skógrækt) skotið var á allt frá ísbjörnum til andfugla mótið var að öllu leiti vel heppnað og eiga Hringhornar þakkir skilið.
Dræm þátttaka hinna ýmsu bogaklúbba mun áfram verða óráðin gáta."
Á Facebook síðunni er fjöldi mynda frá mótinu sem og ýmsum öðrum myndum.

Bogveiðimót (3d hunting)
miðvikudagur 24. ágúst 2011

þessi kepni verður líka opin fyrir alla þá sem eru að skjóta af boga, ekki bara langboga.
Stefnan er að keppni hefjist klukkan 12:30. Mæting er við félagsheimilið Fannahlíð.
Við munum skjóta einn hring og reynt verður að hafa svipað mörg skotmörk og voru hjá okkur um daginn u.þ.b. 30.
Þeir sem ættla sér að keppa þurfa að senda e-mail á bogfimi@hringhorni.is fyrir föstudaginn 2. sept. og tilgreina hvernig boga þeir munu nota, Langboga recurve eða compound. Flokkaskipting verður einföld það eru traditional bogar og síðan nútíma bogar (recurve og compound).
Keppnisgjald er sem fyrr 2.500 kr og greiðist í síðasta lagi á staðnum fyrir keppni (ath. það verður að koma með pening enginn posi verður á staðnum) en hægt er að leggja inn á reikning og senda þá rafræna kvittun á: bogfimi@hringhorni.is
Reikningur: 0186-05-064640
Kennitala: 710306-1920
Fyrsta FITA-900 mótið
laugardagur 02. júlí 2011

Í mótinu tóku þátt eftirfarandi skyttur
Jón M. Árnason (trissubogi) 742 stig
Jón Eiríksson (trissubogi) 651 stig
Kristmann Einarsson (trissubogi) 835 stig
Ester Finnsdóttir (sveigbogi) 674 stig
Guðmundur Smári Gunnarsson (sveigbogi) 795 stig
Ingi Bjarnar Guðmundsson (sveigbogi) 690 stig
Lárus Jón Guðmundsson (sveigbogi) 729 stig
Simon Knight (sveigbogi) 483 stig þess má geta að hann gat ekki tekið þátt í seinustu vegalengdinni keppti aðeins á 40 og 30 metrum.
Skorkortin eru tilbúin og er hægt að skoða hvern einstakan keppanda.
Völlurinn nánast tilbúinn til notkunar
fimmtudagur 23. júní 2011

Við munum reyna að fá bóndann á Setbergi til að slá afganginn með stórvirkari vélum eftir helgina.
ALLIR á VÖLLINN um helgina, nú reynum við að mæta sem oftast og sem flesta daga þegar viðrar fram á haust. Skemmtilegast er að koma á milli 17 - 21 virka daga og milli 14 -18 um helgar, á "opinberum æfingatíma" til að hitta félagana en við getum að öðru leyti komið og æft okkur þegar við viljum.
Munið að fylgjast vel með mannaferðum handan vallarins (í mýrinni) áður en skotið er. Mikilvægt er að sýna ábyrgð, við höfum völlinn til reynslu í sumar og okkur líst vel á að reyna að gera þetta að framtíðarsvæði fyrir ÍFR og aðra bogfimiklúbba sem vonandi fara að spretta upp.
Það þarf að leysa vandamál þeirra sem ekki eiga skotmark, lögreglan mælir ekki með að hafa gám, segja að hann fái ekki að vera í friði og því hætta á að allur búnaður í honum verði eyðilagður.
Merkum áfanga náð
mánudagur 13. júní 2011
Stjórn bogfimideildar ÍFR hefur náð þeim ánægjulega áfanga að tryggja sér afnot af útisvæði skammt frá Urriðavatni (ekki langt frá IKEA) í landi Garðabæjar í sumar.
Landeigendur, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og bæjarverkfræðingur Garðabæjar hafa gefið jákvæðar umsagnir og grænt ljós og við stefnum á að hefja reglulegar æfingar eftir Hvítasunnu helgina og fram til september. Þetta mun styrkja starfið verulega.
Næstu daga verður unnið að því að gera svæðið klárt til æfinga. Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu.

Afnot af Hamranesvelli
miðvikudagur 01. júní 2011

Fram til kl. 16:00 alla virka daga og svo aftur eftir kl. 22:00. Á laugardögum er völlurinn laus eftir kl. 16:00 og fyrir kl.10. Á sunnudögum er völlurinn hins vegar laus allan daginn.
Æfingar utanhúss??
laugardagur 21. maí 2011
Verið er að skoða nokkra möguleika á æfingum utanhúss í sumar og gæti ýmislegt verið í stöðunni þar. Þetta kemur í ljós nú á næstu dögum og verður nánar fjallað um það þegar eitthvað liggur fyrir um það fast. Tvö svæði eru til skoðunar en kannski fullsnemmt að greina frá að svo stöddu núna um hvað er að ræða en það skýrist á næstu dögum.
Úrslit Innanfélagsmótsins
mánudagur 18. apríl 2011
Úrslit Innanfélagsmótsins sem fram fóru sunnudaginn 17. apríl
Annars var gangur keppninar þannig að fyrst kepptu saman Þorsteinn og Valur og vann Þorsteinn 6 - 0 Þá kepptu saman Lárus og Björn og vann Lárus 6 - 2. Þá kepptu um bronsið Valur og Björn og vann Valur þá keppni 7 -1. Um gullið kepptu Þorsteinn og Lárus og vann Þorsteinn 6 - 0.
Hægt er að fletta upp skorkortunum þeirra og sjá gang keppninar en útlitið er kannski ekki það flottasta þetta er tilraun með nýtt form á þeim.
Í Trissubogaflokki voru 5 keppendur og fór keppnin þannig fram að Kristmann sem var efstur eftir fyrri daginn sat hjá 2 lotur þannig að hann keppti í raun bara í úrslitunum um gullið hinir urðu að vinna sér rétt til að keppa við hann.
Fyrst kepptu saman László og Sigurður og vann László 6 - 0. Þá kepptu saman Þröstur og Jón M. og vann Þröstur einnig 6 - 0. Þá var komið að keppni um þriðja sætið þ.e. bronsið og öttu saman kappi Þröstur og László og vann Þröstur 6 - 4 þannig að hann ávann sér rétt til að keppa við Kristmann en László fékk bronsið. Keppnin milli Þrastar og Kristmanns varð æsispennandi og fór hún svo að Þröstur vann 6 - 4. Þess má til gamans geta að Kristmann skoraði einu stigi meira en Þröstur en samt tapaði hann vegna þess að Þröstur vann fleiri sett.

Undankeppni Innanfélagsmótsins
sunnudagur 17. apríl 2011
Undankeppni Innanfélagsmóts ÍFR lauk í gær. Þátttakendur í mótinu að þessu sinni eru aðeins 9 og hefðu alveg mátt vera fleiri. Efstur í Trissubogaflokki er Kristmann Einarsson með 580 stig en í Sveigbogaflokki er Þorsteinn Snorrason efstur með 525 stig. Þess má geta að Björn Halldórsson keppti með sveigboga án sigtis þ.e.a.s. barebow og náði hann 473 stigum.
Innanfélagsmót ÍFR 2011
sunnudagur 10. apríl 2011
Innanfélagsmót ÍFR í bogfimi verður haldið um næstu helgi á venjulegum æfingatíma. Fyrst verður hefðbundið 60 örva mót en daginn eftir á sunnudeginum verður útsláttarkeppni. Útsláttarkeppnin verður með breyttu sniði veitt verða 2 stig fyrir unna umferð (3 örvar) 1 stig fyrir jafntefli og 0 fyrir tap. Sá vinnur lotuna sem fyrr nær 6 stigum.
Keppendur í Sveigbogaflokki nota 40 cm skotskífu. Í Trissuboga flokki er skotið á "Tripple" skífu. Í langboga og unglingaflokki er skotið á 60 cm skífu ef um slíka flokka verður að ræða.
Skráning á mótið er hér á vefnum á síðu sem heitir mótaskráning. Skráningu líkur föstudaginn 15. apríl fyrir kl. 23:00.

Heimsmeistaramót unglinga
mánudagur 28. mars 2011
Heimsmeistaramót unglinga í bogfimi verður haldið í Legnica í Póllandi dagana 22. til 28 ágúst n.k. Nánari upplýsingar á heimasíðu mótsins.
Spennandi keppni á Íslandsmóti
sunnudagur 27. mars 2011
Úrslit Íslandsmótsins í bogfimi 2011 liggja nú fyrir. Þetta er í fyrsta skipti sem keppt er með útsláttarsniði á Íslandsmótinu. Keppnin var oft á tíðum sérlega spennandi og lítið sem skildi stundum í milli keppenda.
Þakka ber Íþróttafélaginu Firði í Hafnarfirði fyrir glæsilega umgjörð mótsins.
Þakka ber Íþróttafélaginu Firði í Hafnarfirði fyrir glæsilega umgjörð mótsins.
Úrslit undankeppni Íslandsmóts 2011
laugardagur 26. mars 2011
Úrslit undankeppni Íslandsmótsins sem haldið er í Hafnarfirði þessa helgina liggur fyrir.
Námskeiðsskráningum lokað
mánudagur 21. mars 2011
Námskeiðsskráningum verður lokað frá og með deginum í dag verið er að leggja lokahönd á skipulangningu tveggja síðustu námskeiðanna nú í vor. Þau eru fullbókuð og ekkert pláss laust eins og staðan er núna. Væntanlega verður framhald á næst haust.
Óhætt er að segja að viðbrögð hafa verið mjög góð og lofar framhaldið góðu.
Óhætt er að segja að viðbrögð hafa verið mjög góð og lofar framhaldið góðu.
Íslandsmótið 2011
sunnudagur 20. mars 2011
Íslandsmótið í bogfimi fer fram 26. og 27. mars og verður í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Skráningu lauk þann 16. mars. Alls hafa 31 keppandi skráð sig til leiks.
Mótið stendur yfir í tvo daga og skotið 60 örvum fyrri daginn. Seinni daginn verður svo útsláttarkeppni og er þá skotið 12 örvum í hverri lotu uns úrslit eru fengin. Skotið er af 18 metra færi að venju. Sjá nánari upplýsingar á síðunni "Mót framundan".

Jafntefli
sunnudagur 20. mars 2011
Úrslit Internetmóts ÍFR og MTV-Dannenberg sem lauk í gær urðu þau að liðin skildu jöfn 26:26. Þetta er reyndar í annað skiptið sem þetta gerist en á fyrsta mótinu sem haldið var 5. júní 2004 skildu liðin einnig jöfn.
Sjöunda Internetmótið
sunnudagur 13. mars 2011
Sjöunda Internetmót ÍFR og MTV Dannenberg verður haldið laugardaginn 19. mars næstkomandi. Þeir sem ætla að taka þátt eru beðnir um að senda tölvupóst á jonei@bogfimi.net. Athugið að það geta aðeins verið þátttakendur frá þessum tveim félögum ÍFR og MTV. Verið er að para saman keppendur þ.e. frá ÍFR á móti MTV. Vakin er athygli á eftirfarandi reglu: Allir keppendur skjóta tveim umferðum 2x30 örvum á þrefalda (tripple) skífu af 18 metra færi.
Ungar skyttur (fæddar 1995-96) og lanbogar (eða bearbow) nota venjulega 40 cm, Þeir sem fæddir eru (1997-2000) 60 cm og yngri 80 cm skífur. Athugið: Í compound flokki gildir innri hringurinn sem 10.
Fréttamiðlun
sunnudagur 13. mars 2011
Nú hefur verið sett fréttaveita frá FITA hér inná forsíðuna hægra megin neðarlega undir fyrirsögninni FITA fréttir
Norræna Unglingamótið 2011
laugardagur 05. mars 2011
Norðurlandamót unglinga í bogfimi fer fram dagana 2. - 3. júlí í Gilleleje í Danmörku. Skráningarfrestur er til 16. maí 2011 Sjá nánar á heimasíðu mótsins.
Tambar Open 2011
þriðjudagur 01. mars 2011
Fimm bogaskyttur frá ÍFR tóku þátt í Tambar Open í Færeyjum þann 26. febrúar sl. Tveir kepptu í trissubogaflokki en það voru Kristmann Einarsson og Jón Eiríksson (umsjónarmaður þessa vefs). Í sveigbogaflokki kepptu Guðmundur Smári Gunnarsson, Ingi Bjarnar Guðmundsson og síðast en ekki síst Ester Finnsdóttir. Við gerðum virkilega góðan túr til Færeyja náðum silfri á Tambar Open en daginn eftir hélt Bogaskjótifélagið Vágaskot keppni með Face2Face sniði sem við tókum þátt í líka.
Ég seti krækjur á bæði mótin en það eru fréttir og úrslit eins og þau birtast á síðu Bogaskjótisambands Føroyja og vorkenni ég ekki nokkrum manni að lesa úr færeyskunni. Einnig setti ég inn nokkrar myndir frá mótinu þ.e.a.s. Tambar Open.
Vonandi er þetta bara upphafið að góðri samvinnu okkar við Færeyinga því við getum margt af þeim lært.

Námskeiðsskráningar opnaðar aftur
fimmtudagur 24. febrúar 2011
Þó nokkur afföll hafa verið hjá þeim sem höfðu skráð sig á bogfiminámskeiðin. Tvö laus pláss voru á fyrsta námkeiðinu sem hófst miðvikudaginn 9. febrúar. Á örðru námskeiðinu er ekkert pláss laust en það hefst 2. mars nk. Nær allir sem bókaðir voru á þriðja námskeiðið höfðu dottið út. Þriðja námskeiðið er allt upp pantað en það hefst 16. mars næstkomandi. Ekkert pláss er laust á 4. námskeiðinu en það hefst 30. mars. Ekki var búið að fastsetja 5. námskeiðið en þegar eru komnar 6 bókanir á það. Við erum byrjaðir að bóka á námskeið nr. 6 en eftir er að ákveða nánar hvenær það hefst..
Við viljum hvetja alla þá sem fengu sendan tölvupóst frá okkur um námskeiðin að staðfesta þátttöku ef þeir eru ekki búnir að því annars verða þau bara bókuð aftur.
Við viljum hvetja alla þá sem fengu sendan tölvupóst frá okkur um námskeiðin að staðfesta þátttöku ef þeir eru ekki búnir að því annars verða þau bara bókuð aftur.
Minningarmótið 2011 úrslit
sunnudagur 20. febrúar 2011
Minningarmótið hélt áfram í dag og byrjað var á undanrásum. Alls voru 11 keppendur en einn hafði forfallast þannig að 3 stigahæstu sátu hjá. Þessi útsláttarkeppni var einnig með forgjafarsniði og skýrir það hvernig stigatölur geta komið einkennilega út.
Meðfylgjandi er graf sem sýnir framgang keppningar eftir að í útsláttarkeppnina var komið.
Forgjöf hvers og eins er gefin upp við nafnið fremst.
Sigurvegari varð Þröstur Steinþórsson með 119, 117 og 116 úr lokaumferðini. Þröstur er með 6 í forgjöf.
Næstur honum varð Kristmann Einarsson með 114, 116 og 112 úr lokaumferðinni. Kristmann er með enga forgjöf.
Í þriðja sæti varð svo Guðmundur Smári Gunnarsson með 119, 116 og 120 úr lokaumferðinni um bronsið. Guðmundur Smári er með 7 í forgjöf.
Úrslit í mótinu

Minningarmótið 2011 fyrri hluti
laugardagur 19. febrúar 2011
Nú stendur yfir Minningarmótið 2011 en þetta er mót sem haldið er til minningar um látna bogfimifélaga. Að þessu sinni er mótið með breyttu sniði þannig að fyrst er undankeppni þar sem skotið er 60 örvum á 18. metra færi. Undankeppnin er með forgjafarsniði þar sem hver keppandi hefur ákveðna forgjöf sem hann hefur áunnið sér. Vegna þessa er aðeins keppt í einum flokki eins og gert er á forgjafarmótum ÍFR. Á morgun 20. febrúar verður svo seinnihluti mótsins en þá verður keppt með útsláttarsniði eins og gert var á RIG í janúar sl.
Skorkort eru sýnd að þessu sinni með breyttu sniði og er þetta tilraun vegna útsláttarmótsins. Þess má geta að Þorsteinn Snorrason er efstur að stigum með 590 stig en hann keppir með sveigboga (recurve) og er með 6 í forgjöf.
Þess má geta að ekki er búið að raða keppendum í nákvæma röð í skorkortaskjalinu. Forgjöf hvers og eins er birt við hliðina á nafninu vinstra megin.

Bogfiminámskeiðin að hefjast
sunnudagur 06. febrúar 2011
Námskeiðsplan hefur verið sett á námskeiðssíðuna en fullbókað er á næstu 5 námskeið. Verið er að hafa samband við þá sem höfðu bókað og verður ekki opnað fyrir skráningu að nýju fyrr en því er lokið.
Úrslit í fjórða forgjafarmótinu
sunnudagur 30. janúar 2011
Fjórða forgjafarmóti ÍFR er lokið. Að þessu sinni voru 9 keppendur í mótinu. Efstur að þessu sinni varð Þröstur Steinþórsson með 296 stig en hann hefur 4 í forgjöf. Í öðru sæti varð Þorsteinn Snorrason með 295 stig en hann hefur 6 í forgjöf. Kristmann Einarsson varð í þriðja sæti með 293 stig en hann er aðeins með 1 í forgjöf. Nánar upplýsingar eru á "Úrslit móta".
Boð á Tambar Open
fimmtudagur 20. janúar 2011
Tambar Open keppnin í Færeyjum verður í ár þann 26. febrúar. Skotið verður á 18. metrum. Forkeppni 60 örvar og svo útsláttarkeppni. Keppt verður í karlaflokki og kvennaflokki.
Þátttaka tilkynnist til Jógvan NIclasen sími +298 518636 eða í tölvupósti jogvan.niclasen@gmail.com í seinasta lagi 23. febrúar nk. Að tilkynningarfresti loknum fá þátttakendur upplýsingar um nánari fyrirkomulag keppninar.
Þann 27. febrúar verður efnt til keppni með Face 2 face sniði. Allir þátttakendur hafa því möguleika á að taka þátt í tveimur keppnum þessa helgi.

Úrslit á RIG 2011
sunnudagur 16. janúar 2011
Úrslit liggja nú fyrir eftir keppnina í dag þ.e.a.s. á RIG 2011. Það er skemmst frá því að segja að Færeyingar hirtu öll gullverðlaunin. Úrslit undankeppninar má finna á RIG Undankeppni.