Íslandsmótið í bogfimi 2012
mánudagur 20. febrúar 2012
Íslandsmótið í bogfimi 2012 verður haldið í samvinnu ÍF og bogfiminefndar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Mótið fer fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Við höfum ákveðið að bjóða uppá skráningu á mótið hér á vefnum á síðunni "Mótaskráning". Eins verður hægt að skrá sig hjá viðkomandi félagi eins og verið hefur hingað til. Báðar skráningar eru jafngildar. Nánar verður fjallað um mótið þegar nær dregur.
8. Internetmót ÍFR og MTV
mánudagur 20. febrúar 2012
Áttunda Internetmót ÍFR og MTV Dannenberg verður haldið laugardaginn 3. mars næstkomandi. Þeir sem ætla að taka þátt eru beðnir um að skrá sig niðrí íþróttahúsi ÍFR. Athugið að það geta aðeins verið þátttakendur frá þessum tveim félögum ÍFR og MTV. Verið er að para saman keppendur þ.e. frá ÍFR á móti MTV. Vakin er athygli á eftirfarandi reglu: Allir keppendur skjóta tveim umferðum 2x30 örvum á þrefalda (tripple) skífu af 18 metra færi.
Ungar skyttur (fæddar 1996-97) og lanbogar (eða bearbow) nota venjulega 40 cm, Þeir sem fæddir eru (1998-2001) 60 cm og yngri 80 cm skífur. Athugið: Í compound flokki gildir innri hringurinn sem 10.
Boð á Evrópumót unglinga/barna
þriðjudagur 07. febrúar 2012
Til allra EMAU Aðildarfélaga
Kæri formaður,
Á vegum Undirbúningsnefndar við bjóðum þér að taka þátt í Evrópumóti Junior / Cadet* utandyra 2. - 7. júlí 2012 í Nykøbing, Danmörku.
Formleg boð hefur borist til Bogfiminefndar ÍSÍ sem við komum hér með á framfæri.
Sjá nánar á síðunni Mót framundan.
*Cadet 17 ára og yngri.
*Junior 20 ára og yngri.

Tambar Open 2012
mánudagur 06. febrúar 2012
Þann 3. mars næstkomandi stendur Bogaskjótifélagið Tambar fyrir keppninni Tambar Open í æfingaplássi félagins í Þórhöfn. Keppt verður í 4 flokkum sveigbogaflokki karla og kvenna og trissubogaflokki karla og kvenna.
Dagskrá keppninar er svohljóðandi:
kl. 09:30 Upphitun karla og kvenna sveigbogaflokki
kl. 10:00 Undankeppni + úrslit
kl. 13:30 Upphitun karla og kvenna trissubogaflokki
kl. 14:00 Undankeppni + úrslit
Skráning hjá Jógvan Niclasen í seinasta lagi 29. febrúar í tölvupósti jogvan.niclasen@gmail.com eða í síma +298 518636

Fullbókað á öll námskeið út þetta tímabil
mánudagur 30. janúar 2012
Fullbókað er nú á öll byrjendanámskeið hjá ÍFR út þetta tímabil. Þráðurinn verður tekin upp aftur næsta haust. Nánari upplýsingar hjá ÍFR í síma 561 8226. Athygli er vakin á því aðeins er tekið við skráningum á námskeiðin á þessum vef.
Fullt að gerast fyrir norðan
fimmtudagur 26. janúar 2012
Eins og fram kemur annars staðar hér á vefnum þá hófu ÍFR í Reykjavík og Akur á Akureyri skipulagðar æfingar í bogfimi strax árið 1974. Hjá ÍFR hafa þær verið stundaðar óslitið síðan en hjá Akri hefur stundum orðið hlé á. Fyrst og fremst hefur það verið aðstöðuleysi sem hefur háð þeim í gegnum tíðina.
Nú hins vegar er allt komið í fullan gang hjá þeim fullt af nýjum strákum eins og einn félaginn orðaði það. Þeir voru einnig svo heppnir að norður á Akureyri fluttist Dani sem hafði verið landsliðsþjálfari Dana og hefur hann reynst starfi bogfimimanna í Akri mikil lyftistöng. Óhætt er að segja að hann hafi gefið bogfimistarfinu hjá Akri alveg nýtt líf. Æft er í íþróttahúsinu við Glerárskóla. Æfingar eru á þriðjudögum (fyrir lengra komna) kl. 19:30 - 21:00 og á laugardögum fyrir byrjendur kl. 10:00 - 12:30. Opnuð hefur verið síða á Facebook sem heitir Bogfimi á Akureyri.
Áhugasamir Akureyringar gætu haft samband við Rúnar Þór Björnsson ef þeir hafa hug á að kynna sér þetta frekar.

Eitt gull tvö silfur og tvö brons
mánudagur 23. janúar 2012
Í bogfimikeppni Alþjóðlegu Reykjavíkurleikanna varð staðan þannig að Íslendingar náðu gulli og bronsi í Trissubogaflokki en í Sveigbogaflokki þá náðum við silfri og bronsi í karlaflokknum og silfri í kvennaflokki en gullið þar fór til Færeyinga.
Í Sveigbogaflokki karla varð staðan þannig
1. Jógvan M. Andreassen 108 stig
2. Guðmundur Smári Gunnarsson 106 stig
3. Lárus Jón Guðmundsson 98 stig
Í Sveigbogaflokki kvenna varð staðan þannig
1. Jastrid Mathea Rein Jensen 100 stig
2. Ester Finnsdóttir 64 stig
Í Trissubogaflokki karla varð staðan þannig
1. Kristmann Einarsson 112 stig
2. Jógvan Niclasen 111 stig
3. Guðgeir Guðmundsson 110 stig
Keppnin gekk mjög vel fyrir sig þrátt fyrir að bilun hafi komið upp í ljósabúnaði skotstjóra þá var það leyst með öðrum hætti.

Úrslit RIG 2012
sunnudagur 22. janúar 2012
Undankeppni RIG 2012 í bogfimi var háð laugardaginn 21. janúar. Úrslitakeppnin fór svo fram sunnudaginn 22. janúar og hófst kl. 10:00. Þar er um útsláttarkeppni að ræða þar sem keppt er innan hvers flokks maður á mann þar til úrslit fást.
Fullbókað á námskeið í bili
þriðjudagur 17. janúar 2012
Fullbókað er nú á öll byrjendanámskeið hjá ÍFR fram í mars. Nánari upplýsingar hjá ÍFR í síma 561 8226. Athygli er vakin á því aðeins er tekið við skráningum á námskeiðin á þessum vef.
Frumvarp til vopnalaga
mánudagur 16. janúar 2012
Nú er komið fram til umsagnar drög að vopnalögum varðandi bogaeign. Það sem drögin segja um bogaeign þá ekki litið til nágrannaþjóða okkar i þeim efnum. En samkvæmt nágranna þjóðum okkar þá gilda engar reglur um boga og örvar og skiptir ekki máli í hvað búnaðurinn er notaður allt er sett undir sama flokk. Nánar um þetta mál á síðunni "Bogfimi og vopnalög". Þar kemur fram að strax árið 2010 sendi þáverandi bogfiminefnd ÍFR ásamt bogfiminefnd ÍSÍ og Indriða R. Grétarssyni núverandi formanni Bogveiðifélags Íslands tillögu til breytinga á núverandi lögum um boga og bogaeign ásamt athugasendum við gildandi reglulerð sem ekkert hefur verið tekið tillit til.
Bogfimi á RIG 21. og 22. janúar nk.
fimmtudagur 05. janúar 2012
Eins og fram hefur komið hér fyrr verður keppt í bogfimi á Reykjavik International Games. Mótið stendur yfir í tvo daga þann 21. og 22. janúar. Skotið verður 60 örvum fyrri daginn og verður keppt sér í sveigboga (recurve) flokki karla og kvenna. Hefst sú keppni kl. 09:00 þann 21. Keppni í trissubogaflokki (Compound) karla og kvenna hefst svo kl. 13:00 sama dag. Átta efstu í hvorum flokki munu síðan keppa í útsláttarkeppni daginn eftir þar til úrslit liggja fyrir og hefst sú keppni kl. 09:00. Skráningu lauk þann 15. desember sl. Á síðunni "Keppendur" má finna upplýsingar um nöfn keppenda.