ágú 2004

Fyrsta FITA mótið

Fyrsta FITA mótið á Íslandi fór fram dagana 21. og 22. ágúst 2004. Keppt var á hefðbundum vegalengdum 30, 50, 70 og 90 metrum, í karlaflokki (undir 50 ára). Ekki tóku nema 3 keppendur þátt í mótinu 2 með recurve boga og einn með Compound boga. Keppt var á Valbjarnarvelli í Laugardal í frábæru veðri báða dagana.

Günther Pinske látinn

Þær dapurlegu fréttir bárust frá Þýskalandi að góður félagi okkar í Dannenberg klúbbnum Günther Pinske hafi látist í umferðarslysi þann 2. ágúst s.l. Günther tók þátt í afmælismóti ÍFR hér á Valbjarnarvelli þann 5. júní sl. og var hann eini félaginn frá Dannenberg sem það gerði. Okkur hér heima er bæði ljúft og skylt að minnast þessa góða drengs sem margar bogaskyttur hér heima hafa átt góð samskipti við.