ágú 2008

Fullt á fyrsta námskeiðið

Fullbókað er á fyrsta námskeiðið í bogfimi á þessu hausti en það mun væntanlega hefjast laugardaginn 13. september n.k. Námskeiðin standa að venju í þjár helgar. Skráningarsíða hefur nú verið opnuð hér á vefnum. Gera má ráð fyrir að annað námskeið hefjist þann 4. október í haust.

Vetrarstarfið hefst uppúr næstu mánaðarmótum

Vetrarstarfið fer að hefjast hjá bogfimifólki ÍFR uppúr næstu mánaðarmótum. Mikið hefur verið spurt um námskeið í sumar en sökum framkvæmda við hús ÍFR hefur það ekki verið hægt. Fljótlega uppúr mánaðarmótum verður komin í gagnið skráningarsíða hér á vefnum þar sem hægt verður að skrá sig á námskeið. Tilkynnt verður hér á vefnum þegar skráningarsíðan er tilbúin svo það er bara að fylgjast með.