ágú 2009

Vegna námskeiðsfyrirspurna

Okkar sívinsælu námskeið hefjast aftur í haust og verða þau auglýst nánar hér á vefnum þegar þar að kemur. Nú þegar er fullbókað á það fyrsta. Um hefur verið að ræða námskeið sem taka þrjár helgar og standa tvo tíma í senn. Verð á námskeiðum hefur verið 8.000 kr. Ekkert er búið að ákveða endanlega með form námskeiða í haust en eins og áður sagði þá verða þau auglýst á vefnum þegar þar að kemur. Námskeiðin fara fram hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík í íþróttahúsi þess að Hátúni 14.

Bogfimimót utanhúss á vegum Hringhorna

IMG_2371 copy
Fyrirhugað, ef næg þátttaka fæst, er að halda bogfimimót í skógræktinni við Fannahlíð - þann 30 ágúst sunnudag og hefst keppnin kl. 10:00 og verður þá skipt í hópa (sjá hér að neðan).
Þetta mót verður með sama sniði og við höfum haldið áður þ.e. 3-d skotmörk í bland við önnur, genginn er hringur og skotið er af  mismunandi fjarlægð á skotmörk af mismunandi stærð við mismunandi aðstæður.
Á hvert skotmark er hægt að nota þrjár örvar en ef hitt er með fyrstu er ekki skotið aftur, mismunandi stigagjöf er fyrir örvarnar.
Þar sem mótið er úti í skógrækt og ekki óalgengt að örvar hafi brotnað eða týnst ef skotið er framhjá.

Fyrirkomulagið er þannig að skipt er í 4-5 manna hópa sem að fylgjast að hringinn einn frá okkur er í hverjum hring og sker hann út um vafaatriði. Farin verður einn hringur fyrir hádegi og síðan annar eftir hádegi.

Flokkaskipting er eftirfarandi: Einviðsbogar og upprunalegir húnbogar, nútímalangbogar og recurve,  og svo eru trissubogar (compound)
Skipt verður síðan í karla og kvennaflokka.
Skógræktin sem um ræðir er í u.þ.b.10 mín. fjarlægð frá Akranesi.
Þar sem við erum ekki með félagsheimilið Fannahlíð á leigu núna er því miður engin salernisaðstaða á svæðinu.

Gott væri að vita um þáttöku á tölvupóstfangið hringhorni@hringhorni.is og ef það eru spurningar þá endilega sendið línu. Keppnisgjald er 2000kr

Bogfimikynning á unglingalandsmóti UMFÍ

Í tengslum við unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina voru félagar úr Skotfélaginu Ósmann ásamt félaga úr ÍFR með bogfimikynningu. Efnt var skotkeppni af 30 metra færi ásamt því að skotið var einnig á blöðrur og mjög litlar vatnsblöðrur af sama færi. Höfðum við þarna ágætis aðstöðu og fylgdist fjöldi manns með. Höfðu áhorfendur sérstaklega gaman af blöðruskotkeppninni, sem fór þannig fram að skytta tilkynnti hvaða blöru hann ætlaði að hitta en þær voru um 10 alls á skotmarkinu. Margar fyrirspurnir fengum við þarna en áhorfendur voru hvaðanæva að af landinu.
Myndir hafa mér því miður ekki borist ennþá en þær eru væntanlegar fljótlega.