Námskeið - mikil aðsókn
þriðjudagur 26. febrúar 2008
Mikil og góð aðsókn er að byrjendanámskeiðum í bogfimi sem haldin hafa verið hjá ÍFR og enn mun vera uppselt á þau út mars. Eitt pláss mun vera eftir í apríl.
Hvernig gekk mínum manni?
sunnudagur 24. febrúar 2008
Eins og segir í færslunni hér á undan þá er Kristmann að taka þátt í móti á vegum NFAA. Um árangur sinn segir hann "Á föstudeginum byrjaði ég að keppa klukkan 10.00. Keppendur á mótinu voru um 600 talsins, og mínum flokki kepptu 211. Gekk mér bara ágætlega. Endaði ég fyrri daginn með 293 stig, af 300 mögulegum, eða í sæti 189. Á laugardeginum keppti ég kl. 15:30." Bíð spenntur eftir skýrslu um laugardaginn. Go Krissi.
Sjá myndband frá mótinu á blogginu hans Krissa.
Sjá myndband frá mótinu á blogginu hans Krissa.
NFAA World Archery Festival
föstudagur 22. febrúar 2008
Félagi okkar Kristmann Einarsson er nú þessa stundina að taka þátt í keppni á vegum NFAA í Las Vegas NFAA World Archery Festival og hafði ég sambandi við konuna hans hana Fjólu og tjáði hún mér að allt gengi að óskum. Þess má geta að Kristmann keppir í Compound flokki. Hann hefur verið iðinn við að taka þátt í keppnum og æfingamótum á undanförnum árum.
Kristmann hefur nú nýlega byrjað að blogga um aðaláhugamál sitt bogfimi, en árangur hanns á undanförnum árum hefur verið framúrskarandi.
Sett hefur verið varanleg krækja á bloggið hann Kristmanns á síðunni um bogfimi á Íslandi.

Fjórða Internetmót ÍFR og MTV Dannenberg
sunnudagur 17. febrúar 2008
Fjórða Internetmót ÍFR og MTV Dannenberg fer fram þann 2. mars n.k. og hefst kl. 14:00
Félögin sem staðsett eru í sitthvoru landinu skiptast á upplýsingum um úrslit um netið strax og þau liggja fyrir. Mótið er haldið samtímis á báðum stöðum þ.e.a.s. í Reykjavík og Dannenberg.
Félögin sem staðsett eru í sitthvoru landinu skiptast á upplýsingum um úrslit um netið strax og þau liggja fyrir. Mótið er haldið samtímis á báðum stöðum þ.e.a.s. í Reykjavík og Dannenberg.