Bogfimi á Facebook
sunnudagur 28. febrúar 2010
Fyrir nokkru bjó ég til síðu á Facebook um bogfimi og er hún hugsuð sem samskiptaleið fyrir alla bogfimi áhugamenn hér á landi. Ný krækja (linkur) er komin hér á vefinn beint á þessa síðu sem heitir "Bogfimi á Facebook". Síðan hefur nú þegar fengið nokkra aðdáendur þrátt fyrir að hafa verið stuttan tíma í loftinu. Endilega sendið inn myndir og þess háttar.
Internetmótinu lokið
laugardagur 27. febrúar 2010
Sjötta Internetmóti ÍFR og MTV er lokið. Staðan varð 36 : 28 fyrir ÍFR. Munurinn er mun minni heldur en í fyrra. Við getum verið ánægð með árangurinn. Að loknu móti söfnuðumst við nokkur saman í félagsheimili ÍFR og vorum í beinu sambandi við MTV félaga í gegnum Skype. Þeir óskuðu okkur til hamingju með sigurinn og við þeim sömuleiðis fyrir góða keppni. Sett hefur verið upp síða sem sýnir hvernig úrslit urðu og hvernig mótið þróaðist.
Íslandsmótið 2010
sunnudagur 21. febrúar 2010
Skráning fyrir Íslandsmótið sem haldið verður 20. og 21. mars þarf að hafa borist fyrir 10. mars næstkomandi. Vinsamlegast hafið samband við undirritaðan ef ykkur vantar skráningarblöð.
Jón Eiríksson
Jón Eiríksson
Internetmótið
laugardagur 20. febrúar 2010

Tambar Open í Færeyjum
þriðjudagur 16. febrúar 2010

Þess má geta að félagið í Færeyjum dregur nafn sitt úr kvæðinu Ormurinn langi
"Einar skalt tú nevna meg
væl kann boga spenna
Tambar eitur mín menski bogi,
ørvar drívur at renna"
Skorkort frá mótinu
Tambar open
Sjötta Internetmótið
mánudagur 15. febrúar 2010
Skráning fyrir 6. Internetmót ÍFR og MTV Dannenberg hefur verið sett upp í Íþróttahúsi ÍFR. Skráning þarf að hafa borist fyrir 24. febrúar næstkomandi. Mótið fer svo fram þann 27. febrúar og þess má geta að 3 keppendur taka þátt í Færeyjum og einn í Stykkishólmi.
Úrslit á Minningarmóti ljós
laugardagur 13. febrúar 2010
Úrslit Minningarmótsins sem fram fór 13. febrúar eru kominn á vefinn. Aðeins tóku 12 þátt að þessu sinni. Myndir frá mótinu eru á síðunni Minningarmót 2010
Minningarmótið
miðvikudagur 10. febrúar 2010
Minningarmót um látna félaga verður haldið nk. laugardag í íþróttahúsi ÍFR og hefst kl. 15:30. Skráning er niðrí íþróttahúsi hvet ég alla sem ætla að taka þátt að skrá sig í síðasta lagi föstudaginn 12. febrúar.