Innanfélagsmótið
laugardagur 16. janúar 2010
Eins og sagði hér fyrr þá var innanfélagsmót ÍFR haldið 16. janúar og tóku alls 15 félagar þátt í mótinu. Keppt var í 7 flokkum: Opnum flokki karla (recurve); Opnum flokki karla (compound); Opnum flokki kvenna (recurve); Flokki fatlaðra (compound); Flokki fatlaðra (recurve); Unglingaflokki; og Byrjendaflokki. Úrslit urðu nokkuð óvænt í sumum flokkum sem gerði mótið mjög spennandi. Nokkrar myndir frá mótinu eru svo komnar hér á vefinn einnig.
Fullbókað
miðvikudagur 13. janúar 2010
Nokkrar fyrirspurnir hafa verið að berast um byrjendanámskeið í bogfimi á þessu ári. Það er skemst frá því að segja að þegar er kominn langur biðlisti og engar horfur á að nein pláss losni fyrr í mars amk.
Innanfélagsmót ÍFR 2010
miðvikudagur 06. janúar 2010
Innanfélagsmót ÍFR í bogfimi fer fram þann 16. janúar næstkomandi. Skotið verður innanhúss af 18. metra færi samtals 60 örvum. Mótið hefst kl. 15:30. Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig á þar til gert eyðublað niðrí íþróttahúsi sem allra fyrst.
Gleðilegt nýtt ár
miðvikudagur 06. janúar 2010
Þakka öllum bogfimimönnum góð samskipti á liðnu ári og vonandi verður nýja árið jafn blómlegt og það síðasta.