jún 2005

Internetmótið 2005

Árlegt Internetmót ÍFR og MTV Dannenberg í bogfimi var haldið þann 18 júní. Félögin sem staðsett eru í sitthvoru landinu skiptast á upplýsingum um úrslit um netið strax og þau liggja fyrir. Mótið er haldið samtímis á báðum stöðum þ.e.a.s. í Reykjavík og Dannenberg.
Þetta mót var haldið í fyrsta skipti í fyrra og allar horfur eru á að það sé búið að festa sig í sessi sem árlegur viðburður.
Endanleg úrslit verða birt sunnudaginn 19. júní