Könnun á tímum

Könnunin sem var hér um æfingatíma utanhúss er nú lokið. Niðurstaðan varð að flestir vildu æfa á tímabilinu 17:00 - 19:00 eða alls 10. Alls bárust 14 atkvæði í könnuninni. Einn vildi vera fyrir hádegi og tveir völdu tíma seinna um kvöldið. Þakka ég góð viðbrögð við könnuninni.

Myndir frá BH frá Fredericia

Sendi þér nokkrar myndir frá heimsókninni til Fredericia í Danmörku sl. 3 vikurnar. Heimsótti soninn og fjölsk. sem er bústettur þar. Síðan kíkti ég á nokkrar æfingar hjá TGI Bueskydning. Það var mjög vel tekið á móti mér og fékk ég að skjóta eins og ég vildi. Meðal annars á 70 metra færi. Eins átti ég kost á að fara með þeim út í skóg, sem einn félagsmanna á og skjóta á alls konar dýr úr plasti. Mjög skemmtilegt að fá þetta tækifæri. Kveðja. Björn Halldórsson,

Vel heppnað námskeið

IMG_2359_2
Eins og sagt var frá í síðustu færslu þá var haldið bogfiminámskeið í Stykkishólmi núna um helgina (13-14). Alls tóku 20 manns þátt í námskeiðinu sem heppnaðist mjög vel. Mikill hugur er í "Hólmurum" og hvöttum við þau til að koma einhverju starfi í gang svo halda mætti áfram á þessum grunni sem byggður var nú um helgina. Leiðbeinendur voru frá ÍFR þau Ingi Bjarnar Guðmundsson, Ester Finnsdóttir og Jón Eiríksson. Vorum við ákaflega sátt við þátttökuna og mótttökur allar í Stykkishólmi. Hafið þökk fyrir öllsömul og þá sérstaklega Anna Sigga.

Námskeið í Hólminum

Anna Sigga
Núna um helgina 13.-14. júní verða nokkrir félagar úr ÍFR með bogfiminámskeið og kynningu í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Tæplega 20 manns hafa nú þegar tilkynnt þátttöku í námskeiðinu. Námskeiðið er haldið að tilhlutan Önnu Sigríðar Guðmundsdóttur en hún var einmitt á námskeiði hjá okkur sl. haust. Hún hefur verið mjög dugleg við að taka þátt í mótum síðan. Vonandi verður þetta upphaf að einhverju meira þarna á Snæfellsnesinu það verður bara að koma í ljós hvað kemur út úr því. Nánar verður fjallað um þetta eftir helgina hvernig til tókst.

Leifur Karlsson fallin frá

IMG_0188
Enn einn félaginn er fallin frá en fyrrverandi formaður bogfiminefndar ÍFR Leifur Karlsson er látinn. Leifur var formaður bogfimnefndar ÍFR í um áratug eða þar til hann flutti til Danmerkur árið 2006. Hann vann ötlullega að framgangi íþróttarinnar og er honum hér þakkað fyrir það ómetanlega starf sem hann vann í þágu greinarinnar. Það er mikill sjónarsviptir að svo litríkum karakter sem hann var, við félagar hans hér heima minnumst hans með þökk.