Seinni dagur Íslandsmót ÍF
sunnudagur 25. mars 2007
Þá liggja endanleg úrslit Íslandsmótsins fyrir. Í compound flokki sigraði Kristmann Einarsson með 1.138 stig. Í opnum flokki karla (recurve) varð Hersir Albertsson hlutskarpastur með 937 stig. Í kvennaflokki varð Ester Finnsdóttir með 855 stig. Byrjendaflokkurinn var fjölmennur en þar varð Kjartan Þór Halldórson efstur með 632 stig. Svo síðast en ekki sýst var unglingaflokkur en þar var Davíð Ólafsson með 373 stig.
Fyrri dagur Íslandsmóts ÍF
laugardagur 24. mars 2007
Fyrri dag Íslandsmóts ÍF í bogfimi er lokið. Þó nokkur forföll urðu á skráðum keppendum en 16 keppendur hófu mótið í morgun. Þegar búið er að skjóta 60 örvum er staðan þessi: Í compound flokki er Kristmann Einarsson efstur með 570 stig, í Opnum flokki karla í recurve er Þröstur Steinþórsson með 482 stig. Ester Finnsdóttir er efst í kvennaflokki með 465 stig. Kjartan Halldórsson er efstur í byrjendaflokki með 319 stig og Davíð Ólafsson er efstur í unglingaflokki með 181 stig. Endanleg úrslit verða svo birt hér á morgun.
Íslandsmót ÍF
þriðjudagur 20. mars 2007
Íslandsmót ÍF í bogfimi fer fram dagana 24. og 25 mars næstkomandi. Að þessu sinni verður keppt í nýju frjálsíþróttahöllinni sal B. Keppni hefst kl. 10:00 báða dagana. Keppendur verða alls 22 og er keppt í a.m.k. fjórum flokkum.