mar 2008

Fjórða Internetmót ÍFR og MTV Dannenberg

Eins og um var getið hér fyrr þá var fjórða internetmót ÍFR og MTV Dannenberg haldið þann 2. mars. Mótið hófst kl. 14:00 stundvíslega.
Keppt var maður á mann þannig að skytta frá ÍFR keppti á móti skyttu frá MTV.
Keppendur í DannenbergKeppendur í Reykjavík

Sérstök síða hefur verið sett upp fyrir mótið.
Mótið fór þannig fram að skotið var af 18 metra færi innanhúss og keppti maður á mann. Skytta frá ÍFR hafði verið pöruð á móti skyttu frá MTV - Dannenberg og þess gætt að geta þeirra væri að svipuðum styrkleika.
Úrslit voru send til móttaðilans um leið og þau liggja fyrir.
ÍFR hlaut 35 stig á móti 29 stigi MTV Dannenberg.
Alls kepptu 17 einstaklingar frá ÍFR í mótinu og þar af þrír í Dannenberg í Þýskalandi.