Internetmótinu lokið
sunnudagur 29. mars 2009
5. Internetmóti ÍFR og MTV-Dannenberg er lokið úrslitin urðu 49:19 ÍFR í vil
Sjá nánar á þessari vefslóð. Þá er komin smá Videó klippa af mótinu á "Videó frá mótum"
Sjá nánar á þessari vefslóð. Þá er komin smá Videó klippa af mótinu á "Videó frá mótum"
5. Internetmót ÍFR og MTV
föstudagur 27. mars 2009
5. Internet mót ÍFR og MTV Dannenberg verður haldið dagana 28. og 29. mars. Félagar í MTV munu halda mótið þann 28. en félagar ÍFR þann 29. Þetta skýrist af því að íþróttahús ÍFR er upptekið og var því ekki hægt að láta mótið fara fram samdægurs.
Íslandsmót 2009
sunnudagur 22. mars 2009
Velheppnuðu Íslandsmóti er lokið. 28 keppendur mættu til leiks. Úrslitin eru tilbúin hér á vefnum á síðunni Úrslit úr ýmsum mótum
Stutt video mynd frá mótinu er á síðunni "Video frá mótum"
Stutt video mynd frá mótinu er á síðunni "Video frá mótum"
Met þátttaka á Íslandsmóti
laugardagur 07. mars 2009
Enn fjölgar á Íslandsmóti en von er á 4 keppendum til viðbótar í langbogaflokki og eru þeir úr Rimmugýgi í Hafnarfirði.
Þá hafa verið settar nánari upplýsingar um Íslandsmótið á síðuna Mót framundan.
Þá hafa verið settar nánari upplýsingar um Íslandsmótið á síðuna Mót framundan.
30 keppendur á Íslandsmóti
miðvikudagur 04. mars 2009
Skráningum er lokið á Íslandsmótið í bogfimi sem fram fer dagana 21. og 22. mars næstkomandi. Að þessu sinni verður keppt í nýju frjálsíþróttahöllinni sal B. Keppni hefst kl. 10:00 báða dagana. Alls hafa 30 keppendur skráð sig til leiks. Mótið hefur aldrei verið jafn fjölmennt og nú og munar þar töluvert um Skagamennina eins og gat um í fréttinni hér fyrr.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Opin flokkur karla - Recurve
Opin flokkur kvenna - Recurve
Opin flokkur karla - Compound
Opin flokkur kvenna - Compound
Fatlaðir - Recurve
Fatlaðir - Compound
Opin flokkur karla - Langbogi
Opin flokkur kvenna - Langbogi
Unglingaflokkur - Recurve
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Opin flokkur karla - Recurve
Opin flokkur kvenna - Recurve
Opin flokkur karla - Compound
Opin flokkur kvenna - Compound
Fatlaðir - Recurve
Fatlaðir - Compound
Opin flokkur karla - Langbogi
Opin flokkur kvenna - Langbogi
Unglingaflokkur - Recurve
Tíu skráð sig til keppni í langbogaflokki
sunnudagur 01. mars 2009
Það lítur út fyrir fjölgun á væntanlegu Íslandsmóti en nú þegar hafa 10 félagar í Hringhorna skráð sig til þátttöku á mótinu. Það verður í fyrsta skipti sem keppt verður í langbogaflokki. Af þessum tíu eru þrjár konur og bjóðum við þær sérstaklega velkomnar þar sem þær hafa því miður verið í miklum minnihluta hingað til.
Mótið verður haldið í Laugardalshöllinni nánar um það síðar þegar nær dregur.
Mótið verður haldið í Laugardalshöllinni nánar um það síðar þegar nær dregur.