Íslandsmótið seinni dagur

hufur
Íslandsmótinu er lokið og voru alls 27 keppendur að þessu sinni. Keppnin var oft á tíðum hörku spennandi og lítið af stigum sem skildi stundum á mili. Aðstaða til keppni var mun betri í dag heldur en var í gær. Vonandi klúðrast ekki aftur svona hlutir með keppnisstaðinn.
Í Recurve flokki karla var sett nýtt met 1.087 stig og það gerði Guðmundur Smári Gunnarsson. Þá setti Óskar Birgisson met í langbogaflokki karla eða 520 stig. Þá var einnig sett met í langbogaflokki kvenna en það gerði Indíana Elín Ingólfsdóttir og fékk hún alls 454 stig. Úrslitin eru hér á vefnum og hægt að fletta upp skorkorti hvers og eins keppanda að venju.
Myndir frá mótinu er að finna á Fésbókinni.

Íslandsmótið fyrri dagur

Íslandsmótið er í fullum gangi. Óhætt er að segja að keppnin er þræl spennandi. Við áttum von á alls 35 keppendum en þeir urðu alls 27 sem mættu til leiks.
Það verður að segjast eins og er að aðstaða til keppni var heldur í lakara lagi í dag en okkur hefur verið lofað að það verði snöggtum betra á morgun. Keppnin á morgun hefst kl. 09:00 stundvíslega og þurfa keppendur að vera mættir ekki seinna en kl. 08:30.

Íslandsmót - skráningu lokið

Skráningu fyrir Íslandsmótið 2010 hefur verið lokað. Ekki verður tekið við fleiri skráningum. Alls hafa 14 keppendur skráð sig í Recurve flokki 5 hafa skráð sig í Compound flokki. Í langbogaflokki eru alls skráðir 16 keppendur.