maí 2007

Brot úr nefndarskýrslu

Í nýlegri skýrslu bogfiminefndar ÍFR er vakin athygli á ferðum eins félaga og hversu öflugur hann hefur verið að leita uppi og taka þátt í mótum á sl. starfsári.
"Kristmann Einarsson félagi okkar hefur verið sérlega iðinn við að taka þátt í mótum erlendis á þessu tímabili sem liðin er frá síðasta aðalfundi. Þess ber að geta að hann gerir þetta algjörlega að engin frumkvæði og án sáralítilla styrkja. Þetta eru helstu mótin í tímaröð.
24.-28. júlí. North Atlantic í Færeyjum. Varð í þriðja sæti eftir tvær umferðir datt svo út, man ekki hvar ég endaði.
24.-28. Ágúst. Æfingarmót í Hollandi.
16.-21. Nóvember. Æfingarmót í Hollandi. Vann eitt mót innandyra á nýju Íslandsmeti 582 stig (60 örvar). 
7.-10. Desember. Face To Face í Amsterdam. 19. sæti. Þetta er eitt sterkasta mótið á árinu.
2007: (það sem af er)
26.-29. Janúar. European Championship í Nimes Frakklandi.
10.-18. Mars. Heimsmeistaramót innanhús í Izmir Tyrklandi. Endaði í 46. sæti með 573 stig."

Fréttir af innanfélagsmóti ÍFR

Eins og getið var um í færslunni hér á undan þá var innanfélagsmót ÍFR haldið þriðjudaginn 22. maí sl. Keppendur voru alls 10 og hefði þátttakan mátt vera betri. Á innanfélagsmótinu sem tók aðeins einn dag var skoðið 60 örvum á venjulegu færi innanhúss þ.e. 18 metrum. Keppt var í 4 flokkum compound, opnum flokki karla recurve, kvennaflokki recurve og svo byrjendaflokki recurve.

Innanfélagsmót ÍFR

Innanfélagsmót ÍFR í bogfimi verður haldið þriðjudaginn 22. maí n.k. og hefst kl. 20:00