Ellimerki - nei !
föstudagur 23. maí 2008
Nokkr
ir gamlir félagar í bogfiminni hafa verið að færa sig í Compound flokk upp á síðskastið. Þeir allra hörðustu í hefðbundnum recurve flokki segja þetta bara "ellimerki" því þeir sem fái sér compound boga hafi bara ekki úthald lengur í það að draga recurve bogan upp. Það eru t.d. u.þ.b. þrjú ár síðan vefstjóri þessa vefs fékk sér sinn fyrsta compound boga. Nú síðast fékk einn af okkar gömlu félögum, sem á nærri 30 ára sögu í bogfimi Þröstur Steinþórsson sér compound boga og í tilefni af þvi að hann náði fullu húsi stiga með nýja boganum þ.e. 30 stigum var meðfylgjandi mynd tekin. Til hamingju með þetta Þröstur.

Innanfélagsmótið hjá ÍFR
miðvikudagur 21. maí 2008
Innanfélagsmót ÍFR fór fram þann 20. maí og tóku 13 keppendur þátt. Það hafði greinilega farið framhjá mótshöldurum að Eurovision var byrjuð. Því miður er ekki hægt að nálgast skorspjöld að þessu sinni við flutning á milli tölva þá yfirskrifaðist skráning stiga þannig að þau eru því miður glötuð. Úrslitin voru hins vegar til í öðru skjali. Myndir munu birtast innan tíðar.
Hvernig er þetta hægt?
mánudagur 19. maí 2008
Þetta á nánast ekki að vera hægt að gera þegar örvarnar eru úr carbon efni. Birni Halldórssyni tókst nú samt að kljúfa carbon ör. Þetta sá maður stundum hér áður fyrr þegar örvarnar voru úr áli og holar. Þær urðu þá eins og "banani". Þetta er tekið á æfingu hjá ÍFR þann 17. maí sl.




Innanfélagsmót ÍFR
laugardagur 10. maí 2008
Innanfélagsmót ÍFR í bogfimi verður þriðjudaginn 20. maí og hefst kl. 20:00. Fimmtán þátttakendur hafa skráð sig til keppni.