maí 2009

Innanfélagsmót ÍFR

Innanfélagsmót ÍFR í bogfimi var haldið þriðjudaginn 5. maí n.k. aðeins 10 keppendur tóku þátt að þessu sinni. Keppt var í 4 flokkum. Hér sést mynd af þátttakendum í mótinu.
Frá vinstri í efri röð Daði Ragnarsson, Lárus J. Guðmundsson, Ingi Bjarnar Guðmundsson (Guðgeir Guðmundsson falin á bak við Inga), Jón M. Árnason og Guðmundur A. Þormóðsson. Í fremri röð frá vinstri: Þröstur Steinþórsson, Ester Finnsdóttir, Hanna M. Kristleifsdóttir (stigavörður) Björn Halldórsson og Jón Eiríksson.
DSC00046

Góðar handbækur

Ómissandi handbók fyrir Recurve skyttur er að finna á þessari slóð. Þarna er nánast allt að finna og svarar þessi handbók mörgum spurningum sem kunna að hafa vaknað hjá ýmsum í gegnum tíðina varðandi recurve bogann. Varanleg slóð á ensku útgáfuna er á síðuni "Bogfimi á netinu".
Sænsk útgáfa af þessari sömu bók er að finna á þessari slóð, ef það er auðveldara fyrir einhverja. Vonandi getur þetta hjálpað þeim sem eru að byrja og eins þeim sem lengra eru komnir.
Prentað eintak er til af bókunum til skoðunar hjá ÍFR.