maí 2010

Vann mína aldursgrein

Nú er það í fyrsta skiptið (eftir þvísem ég best veit) að meðlimur ÍFR bofimi vann 3d veiði keppni erlendis. Það gerðist í dag á Lejrejagten, keppnininni var deilt up í 3 aldursgreinar, mini 12 ára og yngri, junior 13 til18 ára , og svo var hópur fyrir gamlafólkið. Í alt voru ca 125 kependur, og þar á meðal hellingur af dönum, svíum og svo 2 Íslendingar, ég - Björgvin Hjartarson junior og pabbi - Hjörtur Gíslason senior. Keppnin var bara fyrir langboga og því mjög gaman. Það voru  448 möguleg stig (gömlu reglurnar) og út úr því fék ég 295 og vann þar með Junior flokkinn þótt að það væru dregin -5% af mér fyrir að hafa gerviefni í boganum mínum. Ekki er vitað hversu hátt Hjörtur komst enda er hann vanur að skjóta með Trissuboga en ekki langboga. Þetta var  eitt af hinum skemtilegustu mótum sem ég hef verið á, og var það í annað skipti sem  ég hef skotið þar.
Það var skotið á leirdúfur úr skífuefni og "claout skydning" í alt að 170m færi. Einnig var skotið eftir gervi fuglum með fluflu- örvum og deyfðum (blunt) oddum í góðri hæð.
Í alt var þetta frábær veiði sem varaði frá föstudegi til sunudags, þar sem það líka var skemmtun á kvöldin og setið við varðeld fram á nótt.
Björgvin Hjartarson

Myndir frá mótinu

IFR - Danish Open, Nordre Snede Denmark

hg_danmark
Þá er ég búinn að stilla upp fyrir Íslands hönd i fyrsta skipti á bogaveiðimót.
Skemmst frá að segja var árangurinn ekki til að hrópa húrra fyrir. Ég var skráður á trissuboga (50 pund) og var því tilneyddur til að skjóta frá allt að 45m.  Þetta tókst með hjálp félaga mins Tom Haneberg sem aðstoðaði mig við að stilla inn sigti á 5 metra millibill. (Gert á föstudagsæfingunni)
Eins og ég óttaðist þá féllu feitu innanhúss örvarnar minar mikið eftir 22 metra og var því ansi erfitt að hitta X10, 10 eða bara 8.
Eftir að hafa skotið að 40 dýr á laugadeginum og 20 á sunnudeginum varð niðurstaðan 336 stig sem er 5,6 að meðaltali og þar með búið að vinna upp þær örvar sem fóru framhjá.
Gerum betra nærst.
 
Bestu kveðjur
Hjörtur Gísla

Ps. Danir geta ekki sagt Hjörtur og því er ég kallaður Bambi i bogaheiminum (þó alfriðaður)
 
Her er tenging inn á klúbbinn sem hélt mótið:
http://www.noerresnedebueskyttelaug.dk./

Miðnæturmót í bogfimi

Miðnæturmótið í bogfimi 2010 hefst þann 26. júní kl. 22:00. Mótið verður haldið á Hamranesvelli v/Hafnarfjörð skotin verður hálfur FITA round á vegalengdunum 50 og 30 metrum. Keppnisgjald er kr. 2.600 og greiðist við skráningu.

Afnot af Hamranesvelli

bjössi 003
Samið hefur verið um að bogfimiiðkendur geti fengið afnot af Hamranesvelli í sumar á eftirfarandi tímum:
Fram til kl. 16:00 alla virka daga og svo aftur eftir kl. 22:00. Á laugardögum er völlurinn laus eftir kl. 16:00 og fyrir kl.10. Á sunnudögum er völlurinn hins vegar laus allan daginn.
Í undir búningi er að setja upp nauðsynleg tæki og tól og munum við láta vita um leið og það er tilbúið.

Fréttir að norðan

Innan Skotfélagsins Ósmann á Sauðárkróki er stunduð bogfimi eins og fram kemur á síðunni um bogfimi á Íslandi. Þeir hafa verið með kynningar á greininni fyrir norðan og í gær var fyrsti hópurinn þetta sumarið um 20 krakkar hjá þeim. Þeir hafa verið að endurnýja og kaupa búnað meðal annars Ethafoam skotmörk og fl.
Þá hyggast þeir kynna bogfimi fyrir félögum í skotfélaginu Markviss á Blönduósi.

Undirbúningur í fullum gangi

Undirbúningur undir miðnæturmótið sem halda á á Hamranesvelli í Hafnarfirði gengur vel. Gert er ráð fyrir u.þ.b. 45-50 þátttakendum þar af 15 frá Þýskalandi nánar tiltekið frá MTV-Dannenberg.