nóv 2006

Internetmótið

Þriðja Internetmót ÍFR og MTV-Dannenberg fór fram þann 12. nóvember. Félögin sem staðsett eru í sitthvoru landinu skiptast á upplýsingum um úrslit um netið strax og þau liggja fyrir. Þátttakendur voru paraðir niður eftir árangri einn frá hvoru félagi. Eftirfarandi reglur giltu:
• Sá sem sigraði umferðina fékk 2 stig ef munaði meira en 10 stigum
• Ef munaði minna en 10 stigum þá fengu báðir 1 stig
• Sá sem tapaði fékk 0 stig ef munaði meira en 10 stigum á þeim
Sveit ÍFR tapaði í þetta skipti en niðurstaðan varð 21 : 35

Þriðja Internetmótið

Þriðja Internet mót ÍFR og MTV-Dannenberg fór fram í dag úrslit verða birt á næstunni.

Reykjavíkurmót 2006

Reykjavíkurmótið í bogfimi fór fram nú um helgina. Góð þátttaka var í mótinu, sem fram fór í íþróttahúsi ÍFR.