Fullt á næstu námskeið
laugardagur 28. október 2006
Skorkort á netinu
þriðjudagur 24. október 2006
Sett hefur verið á netið skorkort fyrir bogskyttur. Þetta er vefsíða sem hægt er að skrá sig inná og færa stigaskor. Eftir að búið er að færa inn stigaskorið þá er hægt að sjá skorhlutfall, meðaltal, dreifni og staðalfrávik. Einnig er árangurinn sýndur á grafísku formi. Höfundur þessa vefs er Smári P. McCarthy. Gott framtak hjá honum. Vefslóðin er http://archery.yaxic.org
Á síðunni Úrslit úr ýmsum mótum er einnig krækja inn á þennan vef undir Skorkort
Á síðunni Úrslit úr ýmsum mótum er einnig krækja inn á þennan vef undir Skorkort
Nýtt lén
mánudagur 16. október 2006
Þá er þessi vefur loksins kominn á nýtt lén vefslóðin verður eftirleiðis bogfimi.net
Lagfæringar og uppfærsla
laugardagur 14. október 2006
Ég hef verið að lagfæra og uppfæra "Úrslit úr ýmsum mótum", en það er ekki alveg búið ennþá. Elstu mótin vantar enþá, en nú eru inni úrslit frá árinu 2002. Einnig voru gerðar smá lagfæringar hér og þar sem skipta ekki miklu máli en gera samt vefin betri.
Formi forsíðunar var einnig breytt þannig að nú sjást fimm (5) síðustu færslur hverju sinni annað fer í skjalasafnið og hægt að fletta því upp þar undir viðkomandi mánuð og ári.
Formi forsíðunar var einnig breytt þannig að nú sjást fimm (5) síðustu færslur hverju sinni annað fer í skjalasafnið og hægt að fletta því upp þar undir viðkomandi mánuð og ári.
Mót framundan
sunnudagur 08. október 2006
Reykjavíkurmótið í bogfimi verður 4. og 5. nóvember. Helgina eftir þann 12. verður svo hið árlega Internetmót okkar og MTV-Dannenberg. Það mót verður innanhúss að þessu sinni. Nánar síðar verður fjallað um þessi mót síðar.