Nýr og breyttur vefur
laugardagur 30. september 2006
Það er búið að standa nokkuð lengi til að endurskrifa þennan vef og nú hef ég loksins látið verða af því. Þetta er búið að eiga sér langan aðdraganda og því miður tekið allt of langan tíma
Hér á forsíðunni verða helstu fréttir og það sem er að gerast á hverjum tíma. Annars er uppbygging þessa vefs mjög svipuð þeim gamla. Ekki eru allar síður tilbúnar ennþá en verða það fljótlega. Það er von mín að þessi breyting leggjist vel í þá sem hafa nýtt sér vefinn í gegnum tíðina. Endilega sendir mér upplýsingar um gagnlega linka (krækjur) sem ættu heima á þessum vef.

Vetrarstarfið hafið
sunnudagur 10. september 2006
Nú er vetrarstarfið hafið og menn og konur byrjuð að skjóta innanhúss. Ekki hefur reyndar verið mikið skotið utanhúss í sumar. Einhverjir hafa þó reynt. Því miður varð ekkert úr mótshaldi utanhúss í sumar og verður það að teljast mjög miður.
Framundan er Reykjavíkurmót í byrjun nóvember og væntanlega Internetmótið 2006. Ákveðið var að halda það innanhúss að þessu sinni og átti það að vera sl. vor en af því gat ekki orðið. Nákvæm dagsetning liggur ekki fyrir ennþá.

Bogfiminámskeið
þriðjudagur 05. september 2006
Byrjendanámskeið í bogfimi í Íþróttahúsi ÍFR að Hátúni 14 hefst laugardaginn 16. september kl. 17:10 mæting kl. 17:00. Námskeiðið stendur næstu fjórar helgar þ.e. laugardaga og sunnudaga og er mæting kl. 13:40 sunnudagana. Félagið leggur til nauðsynlegan búnað.
Námskeiðið kostar 8.000 krónur.
Námskeiðið kostar 8.000 krónur.