Engin námskeið í desember

Engin námskeið verða í desember mánuði og ekkert er farið að ræða fyrir alvöru um námskeið eftir áramót. En með sama áhuga og verið hefur undanfarið þá má gera fastlega ráð fyrir að námskeiðin hefjist aftur uppúr miðjum janúar á næsta ári.

Opna Reykjavíkurmótið í bogfimi

Opna Reykjavíkurmótið í bogfimi fer fram dagana 29. og 30. nóvember næstkomandi. Nánar auglýst síðar.

Námskeiðsskráning opnuð aftur

Námskeiðsskráning hefur verið opnuð aftur. Eitt pláss var laust á námskeið sem fyrirhugað er að byrji þann 1. nóvember. Nú er það einnig fullbókað.

Fullbókað á öll námskeið fram í nóvember.

Fyrstu þrjú bogfiminámskeiðin eru fullbókuð. Ekki hefur verið ákveðið ennþá hvenær það fjórða hefst. Skráningu verður lokað tímabundið þangað til að búið verður að ákveða með fjórða námskeiðið. Hugsanlega verður það um miðjan nóvember. (Skráningarsíða gerð óvirk)

Fullt á námskeiðið 4. október og 25. október

Það verður að segjast eins og er að viðbrögð við skráningarsíðunni hafa verið góð. Nú þegar er orðið fullt á námskeiðið 4. október en hámarksfjöldi hverju sinni er 4-5.
Þriðja námskeiðið hefst væntanlega þann 25. október og er það nú fullbókað líka.