Video frá mótum
laugardagur 19. september 2009
Bætti við nokkrum Videomyndum frá Archery TV og stefni að því að hafa athyglisverð video þaðan aðgengileg hér á síðunni.
Mót framundan
laugardagur 19. september 2009
Búið er að setja á síðuna "Mót framundan" þau mót sem búið er að ákveða hjá ÍFR.
Myndir frá Hringhornamótinu
fimmtudagur 10. september 2009
Eins og minnst var á hér fyrr þá héldu félagar í Hringhorna utanhúss mót sunnudaginn 30. ágúst sl. Alls tóku 11 keppendur þátt og var þeim skipt í 2 flokka boga án sigtis og boga með sigti. Mótið var hið skemmtilegasta farnir voru tveir hringir. Skotmörkin voru alls 21 nær öll í formi dýramynda (3 D) utan 2 hefðbundin skotmörk. Úrslit verða birt hér um leið og ég hef fengið þau í hendur. Hún Auður tók nokkrar myndir af mótinu.
Nýtt Íslandsmet
miðvikudagur 02. september 2009
Kristmann Einarsson keppti nýlega á móti í Hollandi eða eins og hann segir sjálfur "Mótið var í Boekel, Hollandi. Keppendur voru eitthvað rúmlega 70 talsins.
Ég var fyrstur í mínum flokk (compound) og annar yfir alla. Það var einn með hærra
skor en hann var í junior flokki og því á styttri vegalengdum".
Kristmann keppti þarna í Compound flokki og setti nýtt glæsilegt Íslandsmet. Keppt var á fjórum vegalengdum þ.e.a.s. 90 metrum, 70 metrum, 50 metrum og svo 30 metrum. Skorið var eftirfarandi:
90m = 324 stig
70m = 344 stig
50m = 336 stig
30m = 352 stig
Alls gera þetta 1.356 stig Sjá nánar á skorkortunum.
Mótið var venjulegur FITA round þ.e. 4 * 36 örvar.

Ný námskeiðssíða
miðvikudagur 02. september 2009
Sett hefur verið upp ný síða hér sem heitir Námskeið til að mæta brýnni upplýsingaþörf um okkar sívinsælu námskeið. Þar mun ávallt vera að finna grunn upplýsingar um námskeiðin og svo hvenær þau eru fyrirhuguð.
Byrjendanámskeiðin að hefjast
þriðjudagur 01. september 2009
Eftirtalinn byrjendanámskeið í bogfimi hafa nú verið ákveðin
Haft verður samband við alla sem nú þegar hafa bókað sig og þeir látnir vita á hvaða námskeið þeir hafa verið bókaðir. Ef einhver pláss losna þá ganga þeir fyrir sem þegar hafa bókað en annars verður auglýst hér ef einhver pláss losna.
Námskeiðin hefjast kl. 15:30 á laugardögum en kl. 13:00 á sunnudögum. ÍFR leggur til öll áhöld og tæki.
- Hefst laugardaginn 12. september kl. 15:30. Fullbókað er á þetta námskeið. Þetta námskeið endar sunnudaginn 27. september.
- Hefst laugardaginn 3. október kl. 15:30 Fullbókað er á þetta námskeið. Þetta námskeið endar sunnudaginn 18. október
- Hefst laugardaginn 31. október kl. 15:30 og endar sunnudaginn 22. nóvember. Eitt til tvö pláss laus.