Bogfimi á RIG 21. og 22. janúar nk.

Eins og fram hefur komið hér fyrr verður keppt í bogfimi á Reykjavik International Games. Mótið stendur yfir í tvo daga þann 21. og 22. janúar. Skotið verður 60 örvum fyrri daginn og verður keppt sér í sveigboga (recurve) flokki karla og kvenna. Hefst sú keppni kl. 09:00 þann 21. Keppni í trissubogaflokki (Compound) karla og kvenna hefst svo kl. 13:00 sama dag. Átta efstu í hvorum flokki munu síðan keppa í útsláttarkeppni daginn eftir þar til úrslit liggja fyrir og hefst sú keppni kl. 09:00. Skráningu lauk þann 15. desember sl. Á síðunni "Keppendur" má finna upplýsingar um nöfn keppenda.