Tambar Open 2011

Fimm bogaskyttur frá ÍFR tóku þátt í Tambar Open í Færeyjum þann 26. febrúar sl. Tveir kepptu í trissubogaflokki en það voru Kristmann Einarsson og Jón Eiríksson (umsjónarmaður þessa vefs). Í sveigbogaflokki kepptu Guðmundur Smári Gunnarsson, Ingi Bjarnar Guðmundsson og síðast en ekki síst Ester Finnsdóttir. Við gerðum virkilega góðan túr til Færeyja náðum silfri á Tambar Open en daginn eftir hélt Bogaskjótifélagið Vágaskot keppni með Face2Face sniði sem við tókum þátt í líka.
Ég seti krækjur á bæði mótin en það eru fréttir og úrslit eins og þau birtast á síðu Bogaskjótisambands Føroyja og vorkenni ég ekki nokkrum manni að lesa úr færeyskunni. Einnig setti ég inn nokkrar myndir frá mótinu þ.e.a.s. Tambar Open.
Vonandi er þetta bara upphafið að góðri samvinnu okkar við Færeyinga því við getum margt af þeim lært.