Fullt að gerast fyrir norðan

Eins og fram kemur annars staðar hér á vefnum þá hófu ÍFR í Reykjavík og Akur á Akureyri skipulagðar æfingar í bogfimi strax árið 1974. Hjá ÍFR hafa þær verið stundaðar óslitið síðan en hjá Akri hefur stundum orðið hlé á. Fyrst og fremst hefur það verið aðstöðuleysi sem hefur háð þeim í gegnum tíðina.
Nú hins vegar er allt komið í fullan gang hjá þeim fullt af nýjum strákum eins og einn félaginn orðaði það. Þeir voru einnig svo heppnir að norður á Akureyri fluttist Dani sem hafði verið landsliðsþjálfari Dana og hefur hann reynst starfi bogfimimanna í Akri mikil lyftistöng. Óhætt er að segja að hann hafi gefið bogfimistarfinu hjá Akri alveg nýtt líf. Æft er í íþróttahúsinu við Glerárskóla. Æfingar eru á þriðjudögum (fyrir lengra komna) kl. 19:30 - 21:00 og á laugardögum fyrir byrjendur kl. 10:00 - 12:30. Opnuð hefur verið síða á Facebook sem heitir Bogfimi á Akureyri.
Áhugasamir Akureyringar gætu haft samband við Rúnar Þór Björnsson ef þeir hafa hug á að kynna sér þetta frekar.