Íslandsmótið í bogfimi 2012
miðvikudagur 01. febrúar 2012
Íslandsmótið í bogfimi 2012 verður haldið í samvinnu ÍF og bogfiminefndar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Mótið fer fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Við höfum ákveðið að bjóða uppá skráningu á mótið hér á vefnum á síðunni "Mótaskráning". Eins verður hægt að skrá sig hjá viðkomandi félagi eins og verið hefur hingað til. Báðar skráningar eru jafngildar. Nánar verður fjallað um mótið þegar nær dregur.
Fullbókað á öll námskeið út þetta tímabil
mánudagur 30. janúar 2012
Fullbókað er nú á öll byrjendanámskeið hjá ÍFR út þetta tímabil. Þráðurinn verður tekin upp aftur næsta haust. Nánari upplýsingar hjá ÍFR í síma 561 8226. Athygli er vakin á því aðeins er tekið við skráningum á námskeiðin á þessum vef.
Fullt að gerast fyrir norðan
fimmtudagur 26. janúar 2012
Eins og fram kemur annars staðar hér á vefnum þá hófu ÍFR í Reykjavík og Akur á Akureyri skipulagðar æfingar í bogfimi strax árið 1974. Hjá ÍFR hafa þær verið stundaðar óslitið síðan en hjá Akri hefur stundum orðið hlé á. Fyrst og fremst hefur það verið aðstöðuleysi sem hefur háð þeim í gegnum tíðina.
Nú hins vegar er allt komið í fullan gang hjá þeim fullt af nýjum strákum eins og einn félaginn orðaði það. Þeir voru einnig svo heppnir að norður á Akureyri fluttist Dani sem hafði verið landsliðsþjálfari Dana og hefur hann reynst starfi bogfimimanna í Akri mikil lyftistöng. Óhætt er að segja að hann hafi gefið bogfimistarfinu hjá Akri alveg nýtt líf. Æft er í íþróttahúsinu við Glerárskóla. Æfingar eru á þriðjudögum (fyrir lengra komna) kl. 19:30 - 21:00 og á laugardögum fyrir byrjendur kl. 10:00 - 12:30. Opnuð hefur verið síða á Facebook sem heitir Bogfimi á Akureyri.
Áhugasamir Akureyringar gætu haft samband við Rúnar Þór Björnsson ef þeir hafa hug á að kynna sér þetta frekar.

Eitt gull tvö silfur og tvö brons
mánudagur 23. janúar 2012
Í bogfimikeppni Alþjóðlegu Reykjavíkurleikanna varð staðan þannig að Íslendingar náðu gulli og bronsi í Trissubogaflokki en í Sveigbogaflokki þá náðum við silfri og bronsi í karlaflokknum og silfri í kvennaflokki en gullið þar fór til Færeyinga.
Í Sveigbogaflokki karla varð staðan þannig
1. Jógvan M. Andreassen 108 stig
2. Guðmundur Smári Gunnarsson 106 stig
3. Lárus Jón Guðmundsson 98 stig
Í Sveigbogaflokki kvenna varð staðan þannig
1. Jastrid Mathea Rein Jensen 100 stig
2. Ester Finnsdóttir 64 stig
Í Trissubogaflokki karla varð staðan þannig
1. Kristmann Einarsson 112 stig
2. Jógvan Niclasen 111 stig
3. Guðgeir Guðmundsson 110 stig
Keppnin gekk mjög vel fyrir sig þrátt fyrir að bilun hafi komið upp í ljósabúnaði skotstjóra þá var það leyst með öðrum hætti.

Úrslit RIG 2012
sunnudagur 22. janúar 2012
Undankeppni RIG 2012 í bogfimi var háð laugardaginn 21. janúar. Úrslitakeppnin fór svo fram sunnudaginn 22. janúar og hófst kl. 10:00. Þar er um útsláttarkeppni að ræða þar sem keppt er innan hvers flokks maður á mann þar til úrslit fást.