Ferð til Dannenberg
Þann 20 ágúst sl. lögðum við 11 félagar úr ÍFR í ferð til Þýskalands og var ferðinni heitið til bæjarins Dannenberg við ána Elbu. Þetta mun vera í fjórða skiptið sem hópur frá ÍFR fer þangað en fyrir 10 árum var fyrsta ferðin farinn.
Milli ÍFR og MTV Dannenberg hefur myndast í gegnum þessi tíu ár gott vináttusamband og hefur hópur frá MTV Dannenberg heimsótt Ísland einu sinni en það var árið 2002.
Nú áfram með ferðasöguna, en lent var í Frankfurt - Hahn skömmu fyrir hádegi. Þennan fyrsta dag lá leið okkar til lítils bæjar sem heitir Fritzlar og var gist þar eina nótt. Þetta var þó nokkuð löng leið og tókum við víst á okkur aukarkrók þar sem við villtumst. Við komumst þó heilu og höldnu á áfangastað nokkuð seinna en við ætluðum. Hótelið sem við gistum á þar var sambyggt við elliheimili á mjög notalegum stað.
Daginn eftir var svo lagt í síðasta áfangan þ.e. áleiðis til Dannenberg, og gekk það ferðalag nokkuð snuðrulaust þrátt fyrir einhverja útúrkróka. Reyndar getur sögumaður ekki dæmt um það þar sem hann var að fara þetta í fyrsta skipti.
Það var tekið höfðinglega á móti okkur í Dannenberg eins og við var að búast. Við gistum í tveim húsum í litlu þorpi sem heitir Streelts og er 4 km frá Dannenberg og tilheyrir því bæjarfélagi.
Fyrstu dagarnir voru notaðir í að skoða sig um nágrenið og einnig voru félagar í MTV mjög duglegir að bjóða okkur til alskyns veislufagnaðar.
Konurnar í hópnum voru einkar fundvísar á góðar verslanir eins og þeirra er von og vísa.
Það er óhætt að segja að aðstaða MTV er í alla staði fyrsta flokks, völlurinn til hreinnar fyrirmyndar. Við fengum gott tækifæri til að nýta okkur hann og nutum meðal annars tilsagnar góðra manna eins og t.d. Rudolf Okupniak, sem var í heimsókn í Dannenberg. Hann rekur fyrirtæki sem heitir OK sem smíðar forláta boga bæði Compound og Recurve. Var hann algjör gullnáma að leita í. Eins aðstoðuðu félagar MTV okkur einnig dyggilega og gáfu góð ráð.
Við strákarnir vorum samt ákveðnir í að komast í góða bogabúð, en þangað var dágóður spotti yfir ána Elbu og yfir í gamla Austur-Þýskaland. Búðin sem heitir Gobel bogensport er í bæ sem heitir Seesen. Þar gerðu ýmsir úr hópnum góð kaup ekki bara "strákarnir" . Fengum við í alla stað góða fyrirgreiðslu enda held ég að við höfum bjargað viðskiptunum þann daginn. Vorum að lokum leystir út með forláta húfum sem við skörtuðum síðan.
Helgina eftir að við komum voru tvö mót annars vegar annars vegar svokallað "Kuddelmuddel" og hinsvegar  Deichschießen en það er víðavangs mót sem fram fer á flóðgarði í bænum og er skotið á hin ýmsu skotmörk t.d. blöðrur, fiska í vatni (úr plasti reyndar) og skotmörk handan við flóðgarðin svo dæmi séu nefnd. Kuddelmuddel mótið er hins vegar nokkuð hefðbundið og þó þar er skotið af 30 metra færi á venjulegt mark og eru fjórir keppendur saman á skífu. Að þessu sinni voru skífurnar 24 og var keppendum raðað niður á þær eftir getu. Skotið er alls 60 örvum þremur hverju sinni og sá sem var efstur á sinni skífu færðist á skífu næst til vinstri, sá neðsti færðist aftur á móti á næstu skífu hægra megin. Hinir tveir sem eftir voru dvöldu áfram á sömu skífu.
Það er skemst frá því að segja að okkur félögunum gekk mjög vel og vann félagi okkar Gunnar Jónsson Deichschießen mótið með 728 stigum. Þess ber að geta að hann var að taka þátt í því í fyrsta skipti.
Heljar veisla var haldin í mótslok og var meðal annars grillaður heill göltur. Samskipti félagana hafa verið farsæl í 10 ár og gat Ólafur Davíðsson sendiherra Íslands í Berlín þess í ávarpi sem hann sendi MTV og mun birtast hér síðar í íslenskri þýðingu. Einnig fengum við nokkra umfjöllun í tengslum við mótin sem áður er greint frá.
Eftir að hafa dvalið í 12 daga í Dannenberg var haldið heim á leið og nú voru ekki þræddir sveitavegirnir eins og þegar við komum. Nei nú var það Autobanin og druslurnar þandar eins og þær komust næstum því. Áfangastaðurinn var Altalay við Mosel ána þar sem við áttum notalega stund í afslöppun og skoðunarferð um smábæina við ána. Skemmtilegri ferð var lokið.