Íslandsmótið í bogfimi 2012

Íslandsmótið í bogfimi 2012 verður haldið í samvinnu ÍF og bogfiminefndar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Mótið fer fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Við höfum ákveðið að bjóða uppá skráningu á mótið hér á vefnum á síðunni "Mótaskráning". Eins verður hægt að skrá sig hjá viðkomandi félagi eins og verið hefur hingað til. Báðar skráningar eru jafngildar. Nánar verður fjallað um mótið þegar nær dregur.

Bogfimi á RIG 21. og 22. janúar nk.

Eins og fram hefur komið hér fyrr verður keppt í bogfimi á Reykjavik International Games. Mótið stendur yfir í tvo daga þann 21. og 22. janúar. Skotið verður 60 örvum fyrri daginn og verður keppt sér í sveigboga (recurve) flokki karla og kvenna. Hefst sú keppni kl. 09:00 þann 21. Keppni í trissubogaflokki (Compound) karla og kvenna hefst svo kl. 13:00 sama dag. Átta efstu í hvorum flokki munu síðan keppa í útsláttarkeppni daginn eftir þar til úrslit liggja fyrir og hefst sú keppni kl. 09:00. Skráningu lauk þann 15. desember sl. Á síðunni "Keppendur" má finna upplýsingar um nöfn keppenda.

RIG 2012

Keppt verður í bogfimi á Reykjavik International Games (RIG). Mótið mun fara fram 21. og 22. janúar 2012 á annari hæð Laugardalshallarinnar. Þetta er á sama stað og í fyrra. Nánar verður fjallað um þetta hér þegar nær dregur.
Skráningarsíða fyrir keppnina er tilbúin en skráning þarf að vera komin fyrir 1. desember 2011.
Af gefnu tilefni skal tekið fram að notaðar verða 40 cm skífur í sveigbogaflokki (recurve) en "tripple" skífur í trissubogaflokki (compound).

Reykjavíkurmótið 2011

Reykjavíkurmótið í bogfimi verður haldið í Íþróttahúsi ÍFR dagana 19. og 20. nóvember næstkomandi. Keppnin hefst kl. 16:00 á laugardag. Mæting er kl. 15:30. Keppt er 2x30 örvar hvorn dag á 18 metra færi. Trissubogaskyttur nota "tripple" skífur en sveigbogar nota FITA 40 cm skífu.
Skráning er í Íþróttahúsi ÍFR og lýkur á morgun 16. nóvember.

Reykjavíkurmót 2011

Reykjavíkurmót í bogfimi mun fara fram 19. og 20. nóvember næstkomandi. Nánar auglýst síðar þegar nær dregur.