Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík gengst reglulega fyrir námskeiðum í bogfimi. Miðað er við 12 kennslustundir. Á námskeiðunum eru kennd grunnatriði bogfiminnar. Félagið leggur til áhöld og tæki. Þátttakendafjöldi er u.þ.b. 4 til 5 í hvert skipti.
Námskeiðin kosta 12.000 krónur staðgreitt. Greiða þarf námskeiðsgjaldið fyrirfram inná reikning 515-26-700075 kt. 500775-0339. Ekki verður hægt að hefja þátttöku í námskeiði fyrr en greiðsla hefur átt sér stað.
Námskeiðin eru haldin í íþróttahúsi félagsins að Hátúni 14 og er skráning aðeins hér á vefnum. Á síðunni sem inniheldur dagskrá bogfiminefndar ÍFR má sjá dagsetningar námskeiðanna en tímasetning miðast við venjulega æfingatíma deildarinnar.
Aldurstakmark er 12 ára.