Bogfimi er ekki gömul íþróttagrein á íslandi en hefur verið stunduð hér á landi í um 50-60 ár með einhverjum hætti. Var það með stofnun Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík og Íþróttafélags fatlaðra á Akureyri (nú íþróttafélagið Akur) árið 1974 að skipulagðar æfingar hófust hér á landi. Þó að þessi félög hafi fyrst af öllum hafið æfingar á bogfimi að þá ekki þar með sagt að eingöngu fatlaðir stundi bogfimi, þetta hefur alltaf verið blandaður hópur en í dag er mikill meiri hluti ófatlaðir einstaklingar og góð samvinna á milli allra aðila.
Bogfiminefnd hefur verið starfandi innan Íþrótta og ólympíusambands Íslands og er hlutverk hennar að stuðla að framgangi þessara íþróttagreinar hér á landi og einnig að hafa umsjón með mótum.
Áður en að bogfiminefnd ÍSÍ var stofnuð að þá hafa félagar í bogfimideild ÍFR í raun borið allan þungan af að kynna bogfimi og verið duglegir að rækta sambönd við aðila erlendis svo sem MTV Dannenberg, félög í Færeyjum og svo NBF (norska bogfimisambandið), en það var með námskeiðahald í þjálfun og dómgæslu. Undanfarin ár hefur bogfimideild ÍFR staðið fyrir námskeiðum í bogfimi og hefur verið fullt á þau námskeið. En því miður hefur það ekki skilað sér í nægjanlegri aukningu á iðkendum.
Í gegnum árin hefur Íþróttasamband fatlaðra staðið fyrir íslandsmótinu í bogfimi og var því skipt upp í amk 3 flokka. Það var flokkur fatlaðra karla og kvenna og svo opinn flokkur fyrir alla fatlaða sem ófatlaða. Ástæða þessa er að einu félögin sem stunduðu bogfimi voru aðildarfélög ÍF. Aðilar frá öðrum félögum hafa þó ávallt verið velkomnir að taka þátt.
Nú síðustu ár hefur bogfiminefnd ÍSÍ gengist fyrir mótum í samvinnu við ÍFR og óhætt er að segja að mikil aukning gagnvart áhuga á þessum mótum og er þeim að fjölga sem og fyrirkomulag á þeim. Áhugi elendis er að aukast mikið með að koma hingað til lands og keppa, samanber Miðnæturmót sem haldið var í lok júní 2010 og bogfimimót sem var hluti af Alþjóðlegu Reykjavíkurleikunum í janúar 2011.
Það eru ekki mörg félög sem stunda bogfimi á Íslandi. ÍFR er eina félagið sem hefur stundað bogfimi alveg frá byrjun er æfingar hófust 1974. Nú síðustu ár hafa fleiri félög komið inn en þau eru: Skotfélagið Ósmann Sauðárkróki, víkinga félögin Rimmugýgur og Hringhorni en víkingafélögin hafa tekið fullan þátt í Íslandsmótum í bogfimi. Íþróttafélagið Akur hefur endurreist bogfimistarfið hjá sér. Svo eru nokkur félög að íhuga með að byrja stunda bogfimi innan sinna raða. Haustið 2010 var stofnað Bogveiðifélag Íslands og eitt af markmiðum þess er að stuðla að ástundun og kynningu á bogfimi. Ungmennafélagið Efling á Laugum í Þingeyjarsýslu hefur stofnað bogfimideild innan sinna vébanda og var það gert haustið 2011.
Það er oft spurt hvort sé hægt að fá boga hér á landi og hvað þurfi til. Það mun vera hægt að fá boga hér á landi í verslunum, sem ekki verða tilgreindar hér, en þær eru bundnar ákvæðum vopnalaga um sölu. Þar sem bogar falla undir vopnalög þá gilda um þá ákvæði þeirra. Þá er og einnig að finna ákvæði í reglugerð Dómsmálaráðuneytisins nr. 787/1998 14. gr.